Hrakfarirnar fylla reynslubankann

Hafdís Guðrún Hilm­ars­dóttir gafst upp á Lauga­veg­inum, en hélt áfram. Hún lenti á vegg við Mont Blanc og tábrotn­aði á Ítalíu. Hún er enn þá að bæta sig í hraða og vega­lengdum eftir fimm­tugt og finnur barns­lega gleði við að hlaupa niður snævi þaktar hlíðar.

Hrakfarirnar fylla reynslubankann

Ég hljóp 110 kíló­metra fjalla­hlaup á Tenerife fyrir þremur vikum, ég hljóp Boston-mara­þonið í gær og eftir þrjár vikur fer ég til Wales til að hlaupa 50 kíló­metra fjalla­hlaup,“ sagði Hafdís Guðrún Hilm­ars­dóttir utan­vega­hlaup­ari þegar rætt var við hana á góð­viðr­is­degi í apríl. „Ég hef prófað þetta með aðeins svona smá tvisti með mara­þoni inn á milli sem er svo­lítið skemmti­legt.“

Hafdís hefur hlaupið tölu­vert af Ultra-mara­þon­hlaupum, bæði á Íslandi og erlendis, og henni hefur oft­ast gengið mjög vel en Ultra-mara­þon­hlaup eru hlaup sem eru lengri en 42,2 kíló­metrar sem er skil­grein­ing á mara­þon­hlaupi.

Enn að bæta hraða 51 árs

Hvað utan­vega­hlaup varðar segir hún að í gegnum árin hafi sér gengið best í fyrsta Lauga­vegs­hlaup­inu en þá lenti hún í þriðja sæti. Þá varð hún í fyrsta sæti í sínum ald­urs­flokki á Tenerife í vor í 110 kíló­metra hlaupi. „Ég er enn að bæta mig í vega­lengdum og bætti mig heima í mars bæði í fimm og tíu kíló­metrum. Ég náði að bæta mara­þon­tím­ann minn í mara­þon­inu í gær; ég er að verða 51 árs og er ótrú­lega ánægð með að vera enn að bæta hraða. Mér finnst mér ganga vel og mér finnst gaman að sam­tvinna göt­una og fjöllin þó að fjöllin eigi hug minn allan; mér finnst það skemmti­legra þó að Boston-mara­þonið hafi verið algjör­lega sturlað,“ segir hún með áherslu.

Fjöllin, náttúran og orkan

Hún er spurð hvað það sé við utan­vega­hlaup sem heillar. „Það eru bara fjöllin, nátt­úran og orkan sem maður fær út úr því að vera úti í öllum veðrum. Það er skemmti­legt að fara upp á fjall en það er enn þá skemmti­legra að fara niður fjallið. Maður verður svo frjáls. Maður verður eins og fimm ára aftur, sér­stak­lega ef það er snjór. Ég elska Esjuna. Það er bara eitt­hvað rosa­lega frelsandi og gef­andi við það að vera í fjöll­unum. Það er líka svo gott álag fyrir lík­amann að vera í fjöl­breyttu und­ir­lagi.“

„Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki hlaup eða ein­hverja aðra sam­bæri­lega hreyf­ingu
Hafdís Guðrún Hilm­ars­dóttir

Það er gott fyrir lík­ama og sál að vera úti og hreyfa sig. „Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki hlaup eða ein­hverja aðra sam­bæri­lega hreyf­ingu sem ég hefði fallið svona mikið fyrir. Þetta er bara algjör­lega mín leið til að fylla á gleði­forð­ann. Mér finnst hlaupin líka kenna mér ótrú­lega margt í líf­inu. Það gengur ekki alltaf allt upp og maður þarf oft seiglu til að klára hlaup og stundum æfingar fyrir stóru hlaupin og ég þarf stundum að brjóta keppn­is­hlaupin og æfinga­tíma­bilið á undan niður í smærri mark­mið; allt hjálpar þetta mér í vinn­unni og einka­líf­inu og svo er nátt­úr­lega geggjað að vera í góðu formi.“  

Gafst upp á Laugaveginum

Hafdís hefur upp­lifað ýmis­legt á hlaupa­ferl­inum – bæði jákvætt og nei­kvætt. Hún segir að eft­ir­minni­leg­ast sé fyrsta Lauga­vegs­hlaupið árið 2013. „Ég var á nám­skeiði, ég var ekki búin að hlaupa í mörg ár og var algjör­lega ný í utan­vega­hlaupum; ég vissi ekk­ert um það að vaða ár í hlaupum. 

Úrið mitt dó eftir Emstrur. Það var skíta­veður; haglél og kalt. Ég hafði aldrei farið Lauga­veg­inn áður, ég vissi að ég væri komin yfir fjöru­tíu kíló­metra en ég vissi ekk­ert annað. Þannig að ég ákvað að hætta bara í hlaup­inu fljót­lega eftir að úrið dó. Ég átti lítið eftir af nær­ingu og vissi ekki hvar næsta drykkj­ar­stöð var og hélt það væri kannski engin fyrr en í mark­inu þannig að ég fór bara að labba. 

„Mér fannst þetta allt alveg ógeðs­lega glatað
Hafdís Guðrún Hilm­ars­dóttir

Þá kom einn úr hlaupa­hópnum, spurði hvað ég væri að gera og skamm­aði mig. Ég sagð­ist vera hætt en hann sagði mér að halda áfram og að það væru örfáir kíló­metrar í næstu drykkj­ar­stöð. Ég varð hissa. Ég hafði ímyndað mér að ég væri ekki einu sinni enn þá á þessum Lauga­vegi. Mér fannst þetta allt alveg ógeðs­lega glatað. Ég var ekki með neitt úr og vissi ekki neitt. Þannig að ég hljóp með honum að næstu drykkj­ar­stöð og hám­aði þar í mig Snickers og Powerade. Þetta var í fyrsta skipti sem ég borð­aði súkkulaði á hlaupum. Ég náði síðan þriðja sæt­inu eftir að hafa verið þarna vafr­andi um og ætlað að hætta,“ segir hún.

Upp­lifunin – að lokum – var „ótrú­lega skemmti­leg“. „Þetta var mitt fyrsta Ultra-hlaup og kenndi mér að þó það komi svona stundir þar sem manni finnst hlut­irnir ekki vera að ganga þá veit maður aldrei hvað getur gerst. Þó maður upp­lifi eitt­hvað nei­kvætt þá er bara að njóta þess; og það er það sama með veðrið. Þetta var skíta­veður – haglél í fangið og mik­ill vindur – en síðan hef ég svo­lítið fagnað roki og rign­ingu. Mér finnst það vera skemmti­leg­asta hlaupa­veðrið. Það bætir upp­lifun­ina. Bætir ein­hvern veg­inn við sig­ur­til­finn­ing­una að slást líka við veðrið. Eins skemmti­legt og það er að hlaupa í sól og góðu veðri þá er eitt­hvað ótrú­lega ein­stakt við að hlaupa í roki og rign­ingu.“

FögnuðurHafdís náði þriðja sæti í Lauga­vegs­hlaup­inu eftir að hafa ætlað að gef­ast upp.

Hljóp tábrotin

Hafdís seg­ist hafa lent all­hressi­lega á vegg í miðju hlaupi árið 2019 í CCC í UTMB-ser­í­unni sem er 100 kíló­metra hlaup frá Chamonix. „Ég var komin fimm­tíu kíló­metra þegar ég var farin að kasta upp og bæði svitn­aði og var kalt í um 30 stiga hita. Ég fór inn í lækni­s­tjaldið og ætl­aði að jafna mig og þar mæld­ist lík­ams­hit­inn 34 gráður. Ég fékk nær­ingu og vökva og var látin jafna mig þar til lík­ams­hit­inn var orð­inn nokkuð eðli­legur. Svo spurði lækn­ir­inn hvort ég ætl­aði ekki að klára hlaupið en það var ekki alveg inni í mynd­inni hjá mér. Ég fann að það var eitt­hvað sem var ekki í lagi og ég tók mér alveg ár í að byggja mig upp aftur. Þetta hefur verið ein­hvers konar ofþjálfun.“

Hafdísi lang­aði lengi að taka þátt í TOR, sem er 330 kíló­metra fjalla­hlaup á Ítalíu, sem hefur verið stærsta mark­mið hennar frá því hún byrj­aði að hlaupa.

„Ég var svo heppin að kom­ast inn 2023 en þegar ég var komin um 65 kíló­metra datt ég og tábrotn­aði. Ég vissi ekki þá að táin væri brotin en sárs­auk­inn var mik­ill. Ég var að fara niður bratt gil í brekku í háu fjalli og hljóp niður á drykkj­ar­stöð og fékk þar aðhlynn­ingu hjá lækni. Ég tók verkja­lyf og lét kæla tána til að sjá hvort ég gæti haldið áfram. Mig lang­aði nátt­úr­lega til að klára þetta hlaup og hafði ég sex daga til þess. Það var erfitt að fara í skóna og sárs­auk­inn hafði ekk­ert minnkað. Lækn­ir­inn sagði að táin væri brotin og spelk­aði hana við næstu tá og hljóp ég um 20 kíló­metra í við­bót og það var lík­lega það versta sem ég hef gert á ævinni varð­andi hlaup. Það var þannig lagað allt í lagi að fara upp en að hlaupa svo niður var hræði­legt,“ segir hún.

Hún reyndi aftur við hlaupið. „Ég komst aftur inn á TOR í fyrra og þá togn­aði ég á kálfa. Ég komst ekki einu sinni á ráslínu. Ég sótti því um í þriðja sinn og komst inn. Þannig að núna krossa ég fingur í þriðja sinnið og vona að heppnin verði með mér í sept­em­ber, allt er þegar þrennt er.“

Hafdís mælir með utan­vega­hlaupum sem hreyf­ingu og alls ekki sé nauð­syn­legt að vera í löngum vega­lengdum heldur sé einmitt mikið úrval af styttri keppn­is­hlaupum bæði hér­lendis og erlendis. Hún mælir sér­stak­lega með Esjunni til að bæta sig í hlaupum.

MeðmæliHafdís mælir með utan­vega­hlaupum sem hreyf­ingu og alls ekki sé nauð­syn­legt að vera í löngum vega­lengdum heldur sé einmitt mikið úrval af styttri keppn­is­hlaupum bæði hér­lendis og erlendis. Hún mælir sér­stak­lega með Esjunni til að bæta sig í hlaupum.

 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hlaupablaðið 2025

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár