Kristrún endurkjörin formaður með rúmlega 98 prósent atkvæða

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hlaut í dag end­ur­kjör sem for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar á lands­fundi flokks­ins með 98,7 pró­sent atkvæða.

Kristrún endurkjörin formaður með rúmlega 98 prósent atkvæða

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hlaut 98,7 pró­sent atkvæða í end­ur­kjöri til for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar á lands­fundi flokks­ins í dag. Hún var ein í fram­boði til emb­ætt­is­ins.

For­mað­ur­inn ávarp­aði fund­inn þegar nið­ur­stöð­urnar lágu fyrir og þakk­aði flokks­mönnum traustið. „Það er heiður að fá að leiða Sam­fylk­ing­una áfram og ég er ótrú­lega þakk­lát fyrir end­ur­nýjað umboð. Ég gæti þetta ekki án ykkar og ég mun leggja mig alla fram hér eftir sem hingað til,“ sagði hún. 

Þá lof­aði hún að yrði ekki fjar­læg og að hún myndi ekki missa teng­ing­una við fólkið í flokknum og land­inu. „Sam­fylk­ingin er komin á réttan stað núna. Ég held við finnum það öll. Þetta er mjög nátt­úru­legt. Hér eigum við að vera, í for­ystu­stjórn lands­mál­anna.“

Lands­fundur Sam­fylk­ing­ar­innar fer fram í dag og á morgun í Fossa­leynir Studio í Graf­ar­vogi í Reykja­vík. 

Síðar í dag munu kjör í önnur emb­ætti liggja fyrir en Guð­mundur Árni Stef­áns­son, sitj­andi vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, er einn í fram­boði til vara­for­manns.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár