Sjálfstæðisflokkurinn á flugi í Reykjavík

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nýtur lang­mests stuðn­ings í borg­ar­stjórn Reykja­víkur. Sam­fylk­ingin, flokkur borg­ar­stjóra, nýtur jafn mik­ils stuðn­ings og í síð­ustu kosn­ingum.

Sjálfstæðisflokkurinn á flugi í Reykjavík
Upp Borg­ar­stjórn­ar­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins er að sækja í sig veðrið. Hildur Björns­dóttir er odd­viti flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í borg­inni nýtur stuðn­ings tæp­lega 34 pró­sent kjós­enda. Sam­fylk­ingin hefur á sama tíma stuðn­ing 20 pró­sent borg­ar­búa. Það er um það bil jafn mikið og flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum. Þetta eru nið­ur­stöður könn­unar Gallup fyrir Við­skipta­blaðið. 

Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist þriðji stærsti flokk­ur­inn, með rúm­lega 13 pró­senta fylgi, en stuðn­ingur við Flokk fólks­ins er svo lítið að flokk­ur­inn næði ekki full­trúa inn í borg­ar­stjórn, yrðu þetta nið­ur­stöður kosn­inga. Flokk­ur­inn mælist með 3,6 pró­sent stuðn­ing.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir við sig tölu­verðu fylgi frá kosn­ing­unum 2022, þegar flokk­ur­inn fékk 24,5 pró­sent atkvæða. Hann var þá engu að síður stærsti flokk­ur­inn í borg­ar­stjórn.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn vann það ár mik­inn sigur og reif fylgi sitt upp í 18,7 pró­sent í kom sér í meiri­hluta. Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sóknar, sleit hins vegar meiri­hlut­anum eftir að hafa sjálfur sest í borg­ar­stjóra­stól­inn. Nú mælist fylgið 4,7 pró­sent.

Stuðn­ingur við Vinstri græna mælist 4,6 opró­sent, sem er á sömu slóðum og í kosn­ing­unum 2022. Virðist fylgi flokks­ins á hægri upp­leið frá lág­punkti sem birt­ist í könnun í októ­ber á síð­asta ári, þegar flokk­ur­inn mæld­ist með 1,9 pró­sent. 

Fylgi Pírata hefur helm­ing­ast frá kosn­ingum og mælist nú 5,5 pró­sent, sam­an­borið við 11,6 pró­senta kjör­fylgi. Fylgi Mið­flokks­ins hefur á sama tíma tvö­fald­ast, farið úr 2,4 pró­sentum í kosn­ing­unum og upp í 5,1 pró­sent. Það myndi tryggja flokknum full­trúa í borg­ar­stjórn. 

Á móti myndi Flokkur fólks­ins missa sinn eina full­trúa. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár