Vara við kvikuhlaupi og mögulegum sprunguhreyfingum innan bæjarins

Kvikan er að hreyfa sig bæði til norð­aust­urs en einnig til suð­urs í átt að Grinda­vík. Talið er að um stærri atburð sé að ræða nú en síð­ast. Enn er þó óvíst hvort kvikan nái upp á yfir­borðið.

Vara við kvikuhlaupi og mögulegum sprunguhreyfingum innan bæjarins

Kviku­hlaup er hafið á Sund­hnúks­gíga­röð­inni. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Veð­ur­stofu Íslands eru merki frá aflög­un­ar­mælum sterk­ari en sést hafa í síð­ustu atburðum á Sund­hnúks­gíga­röð­inni. Sem sýnir að tals­vert magn kviku er á ferð­inni. Merkin sem sjást sýna að kvikan er að hreyfa sig bæði til norð­aust­urs en einnig til suð­urs í átt að Grinda­vík. Verið er að rýma Grinda­vík en Bláa lónið var rýmt fyrr í morgun. Um 200 gestir og starfs­menn voru á hót­el­inu. 

Samkvæmt upp­lýs­ingum Veð­ur­stof­unnar er ekki hægt að full­yrða hvar kvikan muni koma upp, en færslan á aflög­un­ar­merkjum til suð­urs sáust ekki í eld­gos­inu sem hófst í nóv­em­ber 2024.

Búið er að virkja sam­hæf­ing­ar­stöð Almanna­varna. Þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar er til­búin til að fara í loftið. 

Yfir 100 skjálftar hafa orðið á Reykja­nesskaga frá því að kviku­hlaup hófst klukkan hálf sjö. Skjálfta­hrinan er stað­sett á milli Sýl­ing­ar­fells og Stóra-Skóg­fells. Við­bragðs­að­ilar í Grinda­vík segj­ast finna fyrir jarð­skjálftum …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár