Ráðist í nauðsynlegar aðgerðir til að styrkja varnarviðbragð Íslands

Upp­setn­ing á sam­þætt­ing­ar­mið­stöð öryggis- og varn­ar­mála, notkun á ómönn­uðum eft­ir­lit­skaf­báti til að efla eft­ir­lit með sæstrengjum og höfnum, og efl­ing eft­ir­lits með netárásum er meðal aðgerða sem ráð­ist verður í til að styrkja varn­ar­við­bragð Íslands. Utan­rík­is­ráð­herra kynnti í rík­is­stjórn í morgun til­lögu að mótun stefnu í öryggis- og varn­ar­málum Íslands.

Ráðist í nauðsynlegar aðgerðir til að styrkja varnarviðbragð Íslands

Utan­rík­is­ráð­herra kynnti í rík­is­stjórn í morgun til­lögu að mótun stefnu í öryggis- og varn­ar­málum Íslands. Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar frá því í des­em­ber kemur fram að mótuð verði öryggis- og varn­ar­mála­stefna. 

Stefn­unni er ætlað að lýsa helstu örygg­is­á­skor­unum til lengri og skemmri tíma með áherslu á ytri ógnir og draga fram mark­mið Íslands í alþjóð­legu öryggis- og varn­ar­sam­starfi, fjalla um nauð­syn­legan varn­ar­við­búnað, og skipu­lag og getu sem þurfi að vera til staðar á Íslandi, auk þess að benda á hugs­an­legar umbætur á laga- og stofna­naum­gjörð varn­ar­mála.

Efling vöktunar

Á sama tíma og þessi vinna hefst verður ráð­ist í nauð­syn­legar aðgerðir til að styrkja varn­ar­við­bragð Íslands og stöðu lands­ins sem  sam­starfs­að­ila banda­lags­ríkja í varn­ar­málum, innan núver­andi fjár­heim­ilda til varn­ar­mála. Þar er meðal ann­ars horft til þess að auka sam­legð í starfi stofn­ana á þessu sviði með auknu sam­starfi, efldri vökt­unar- og við­bragðs­getu og kaupum á sér­hæfðum bún­aði.

Meðal aðgerða sem ráð­ist verður í er upp­setn­ing á sam­þætt­ing­ar­mið­stöð öryggis- og varn­ar­mála á varn­ar­mála­skrif­stofu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í sam­vinnu við rík­is­lög­reglu­stjóra, Land­helg­is­gæsl­una og CERT-IS. Þá verður ómann­aður eft­ir­lit­skaf­bátur tek­inn í notkun í sam­vinnu við Land­helg­is­gæsl­una til að efla eft­ir­lit með sæstrengjum og höfnum. Eftirlit með netárásum verður sömu­leiðis eflt, örugg fjar­skipti bætt og ráð­ist í kaup á bún­aði til að nema og stöðva ólög­lega dróna.

„Við þurfum að sjá til þess að hér sé til staðar nauð­syn­leg þekk­ing, geta og inn­viðir til að tryggja öryggi Íslands í sam­starfi við banda­lags­ríki okkar“
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir

„Þörfin á styrk­ingu í öryggis- og varn­ar­málum er knýj­andi og því hef ég flýtt þess­ari stefnu­mótun, sem unnin verður í sam­starfi við alla flokka á Alþingi,“ er haft eftir Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu. „Við þurfum að sjá til þess að hér sé til staðar nauð­syn­leg þekk­ing, geta og inn­viðir til að tryggja öryggi Íslands í sam­starfi við banda­lags­ríki okkar. Í dag erum við ekki aðeins að ýta úr vör stefnu­mótun heldur einnig aðgerðum,“ segir hún enn­fremur.

Samráðshópur þingmanna

Samkvæmt utan­rík­is­ráðu­neyt­inu verður við mótun stefn­unnar byggt á stefnum og skuld­bind­ingum sem Ísland hefur tek­ist á hendur og átt þátt í að þróa, meðal ann­ars innan Atl­ants­hafs­banda­lags­ins og á grund­velli varn­ar­samn­ings­ins við Banda­ríkin og svæð­is­bund­ins varn­ar­sam­starfs.

Settur verður á fót sam­ráðs­hópur þing­manna allra flokka sem sæti eiga á Alþingi til að ræða inn­tak og áherslur stefn­unnar. Jafn­framt verður óskað álits frá inn­lendum og erlendum sér­fræð­ingum á sviði öryggis- og varn­ar­mála. Þá verður náið sam­ráð haft við utan­rík­is­mála­nefnd, ráð­herra­nefnd um öryggis- og varn­ar­mál og þjóðar­ör­ygg­is­ráð. Utan­rík­is­ráðu­neytið heldur utan um vinn­una í sam­starfi við dóms­mála­ráðu­neytið og önnur ráðu­neyti og stofn­anir. Stefnt er að því að leggja fram drög að stefnu fyrir lok vor­þings. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár