María kemur í stað Ölmu sem landlæknir

María Heim­is­dóttir hefur verið skip­aður nýr land­læknir. Hún tekur við af Ölmu Möller sem nú er heil­brigð­is­ráð­herra.

María kemur í stað Ölmu sem landlæknir
Nýr land­læknir María var talin mjög hæf til að gegna starf­inu, sam­kvæmt mati nefndar sem fór yfir umsóknir um emb­ættið. Mynd: Sjúkratryggingar Íslands

María Heim­is­dóttir hefur verið skipuð í emb­ætti land­læknis. Það var Jóhann Páll Jóhanns­son, settur heil­brigð­is­ráð­herra, sem gerði það, en hann leysti af Ölmu Möller heil­brigð­is­ráð­herra sem vék við skipun eft­ir­manns síns í land­lækn­is­emb­ættið.

María var metin mjög vel hæf af hæfn­is­nefnd, sam­kvæmt til­kynn­ingu á vef ráðu­neyt­is­ins. Hún er með emb­ætt­is­próf í lækn­is­fræði, hefur lokið MBA-námi frá banda­rískum háskóla og dokt­ors­prófi í lýð­heilsu, líka frá Banda­ríkj­unum. Hún starf­aði um ára­bil hjá Íslenskri erfða­grein­ingu og á Land­spít­ala, þar sem hún var meðal ann­ars yfir­læknir og fram­kvæmda­stjóri fjár­mála.

María var for­stjóri Sjúkra­trygg­inga Íslands frá 2018 til 2022. Það vakti tölu­verða athygli þegar hún sagði því starfi lausu en í bréfi til sam­starfs­fólks sagð­ist hún ekki vilja taka ábyrgð á van­fjár­magn­aðri stofn­un. 

„Það hefur [...] ekki tek­ist að styrkja rekstr­ar­grund­völl [Sjúkra­trygg­inga] til að ná ásætt­an­legum árangri – að við getum rækt lög­boðnar skyldur okkar með sóma og boðið sam­keppn­is­hæf laun. …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár