Flokkur fólksins tapar fylgi

Stuðn­ingur við Flokk fólks­ins fellur um fimm pró­sentu­stig í nýrri könnun. Flokk­ur­inn nýtur rúm­lega níu pró­senta stuðn­ings. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist í seil­ing­ar­fjar­lægð frá Sam­fylk­ing­unni.

Flokkur fólksins tapar fylgi
Ósátt við fjöl­miðla Inga Sæland, leið­togi Flokks fólks­ins, hefur verið gagn­rýnin á fjöl­miðla, þá sér­stak­lega Morg­un­blaðið, fyrir umfjöllun um flokk­inn und­an­farnar vikur. Mynd: Golli

Fylgi Flokks fólks­ins mælist 9,1 pró­sent í nýrri könnun Maskínu. Flokk­ur­inn fékk 13,8 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum og hefur hann því tapað 4,7 pró­sentu­stigum. Greint var frá nið­ur­stöð­unum í kvöld­fréttum Stöðvar 2.

Fylgi ann­arra flokka sveifl­ast minna. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með slétt tveggja pró­sentu­stiga meiri stuðn­ing nú en í kosn­ing­unum; með 21,4 pró­senta stuðn­ing. Sam­fylk­ingin er rétt um pró­senti sterk­ari nú, með 21,9 pró­senta fylgi.

Fylgi Pírata og Vinstri grænna, sem báðir féllu af þingi í kosn­ing­unum, hefur lítið breyst frá kosn­ingum. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár