Ræða Kristrúnar í Kyiv: „Dimmur dagur í sögu Evrópu“

Rík­is­stjórn Íslands hefur sam­þykkt að auka stuðn­ing til Úkraínu um rúma tvo millj­arða króna. Á leið­toga­fund­inum í Kyiv sagði Kristrún Frosta­dóttir að friður í Evrópu hefði verið rof­inn fyrir þremur árum með inn­rás Rússa í Úkraínu sem væri á skjön við öll alþjóða­lög.

„24. febr­úar er dimmur dagur í sögu Evrópu. Fyrir þremur árum var friður í Evrópu rof­inn,“ sagði Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra á leið­toga­fundi í Kyiv í dag sem hald­inn er í til­efni þess að þrjú ár eru liðin frá inn­rás Rúss­lands í Úkraínu. Í ávarp­inu sagði hún að með inn­rásinni hefðu Rússar þver­brotið öll alþjóða­lög og að sterk­ari staða Úkraínu væri lyk­ill­inn að var­an­legum friði. 

Kristrún tók í morgun þátt í minn­ing­ar­at­höfn um úkra­ínska her­menn sem hafa fallið í bar­áttu þjóð­ar­innar á und­an­förnum árum. Þá ávarp­aði hún leið­toga­fund­inn en hann sækja leið­togar Norð­ur­landa, Eystra­salts­ríkj­anna, Kanada, Spánar og stofn­ana Evr­ópu­sam­bands­ins sem og for­seti Úkraínu, Volodomir Zelensky. Einnig taka á annan tug leið­toga þátt með fjar­fund­ar­bún­aði.

Í ávarpi sínu árétt­aði Kristrún ein­dreg­inn stuðn­ing Íslands við Úkraínu. 

„Orð eru ódýr. Verkin tala. Þess vegna hafa Norð­ur­lönd og Eystra­salts­ríkin tekið saman höndum um að styðja áfram við varnir Úkraínu með beinum hætti,” sagði Kristrún sem til­kynnti um að rík­is­stjórn Íslands hafi sam­þykkt að auka stuðn­ing við Úkraínu um 2,1 millj­arð króna í ár.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra, lagði til­lögu þess efnis fyrir rík­is­stjórn­ina sem sam­þykkti hana fyrir helgi, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu. Með þess­ari ákvörðun fer varn­ar­tengdur stuðn­ingur Íslands við Úkraínu úr 1,5 í 3,6 millj­arða á árinu. Þessi hækkun er til þess að Ísland standi undir skuld­bind­ingum sínum, meðal ann­ars þings­á­lyktun Alþingis um stuðn­ing Íslands við Úkraínu frá því í fyrra og á leið­toga­fundi Atl­ants­hafs­banda­lags­ins síð­asta sumar.

„Við Íslend­ingar erum stolt af fram­lagi Norð­ur­landa og Eystra­salts­ríkj­anna sem fara fremst á alþjóða­vísu í stuðn­ingi við Úkraínu. Á meðal okkar er full sam­staða um að standa þétt með Úkraínu á þessum við­kvæma tíma­punkti þegar úkra­ínska þjóðin heyir varn­ar­bar­áttu sem snýr raun­veru­lega að öryggi Evrópu allrar,“ sagði Kristrún í Kyiv.

Kjósa
41
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurveig Eysteins skrifaði
    Algjörlega galið....
    Og það eru ekki til peningar til að taka út krónu á móti krónu hjá lífeyrisþegum og öryrkjum... enn allt í einu eru til milljarðar til að setja í stríðsrekstur... hvað með heilbrigðiskerfið, vegakerfið, menntakerfið svo ég nefni bara nokkur atriði...🫣🥴😳
    -7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár