Nýr meirihluti leysir upp íbúaráð

Ný borg­ar­stjórn verður kynnt í dag. Í dag­skrá borg­ar­stjórn­ar­fundar má finna til­lögur þar sem íbúa­ráð verða leyst upp og mál­efni fatl­aðs fólks verður sam­einað mann­rétt­inda- og ofbeld­is­varn­ar­ráði og úr verður nýtt mann­réttinda­ráð.

Nýr meirihluti leysir upp íbúaráð
Hér má sjá odd­vita flokk­ana á fundi fyrr í vik­unni. Mynd: Golli

Auka­fundur borg­ar­stjórnar Reykja­víkur verður hald­inn klukkan 16:40 í dag og verður þá nýr meiri­hluti og kosið í ráð. Vísir greindi frá því síð­degis í gær að Heiða Björg Hilm­is­dóttir, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar verði kjörin borg­ar­stjóri en það hefur ekki verið stað­fest. Heim­ildin reyndi að hafa sam­band við hana án árang­urs. 

Píratar héldu fund í gær­kvöldi þar sem nýtt meiri­hluta­sam­starf var kynnt og Sam­fylk­ingin heldur sams­konar fund um klukkan þrjú í dag. Þá vekur athygli að Heiða Björg á afmæli í dag.

Tvær til­lögur liggja fyrir á dag­skrá fund­ar­ins frá borg­ar­full­trúum hins nýja meiri­hluta. Fyrri til­lagan snýr að breyttu hlut­verki mann­rétt­inda- og ofbeld­is­varn­ar­ráðs.

Þar er lagt til að borg­ar­stjórn sam­þykki að sam­eina mála­flokka sem nú heyra undir fjöl­menn­ing­ar­ráð, öld­unga­ráð og sam­ráðs­nefnd í mál­efnum fatl­aðs fólks í nýju mann­réttinda­ráði sem tekur við hlut­verki mann­rétt­inda- og ofbeld­is­varn­ar­ráðs. For­sætis­nefnd er falið að vinna nýja sam­þykkt fyrir ráðið í sam­ráði við mann­rétt­inda- og lýð­ræð­is­skrif­stofu sem skal lögð fram til sam­þykktar á fyrsta fundi borg­ar­stjórnar í mars og kemur í stað gild­andi sam­þykkta. 

Í seinni til­lög­unni má einnig finna afger­andi breyt­ingar, en þar er lagt til af nýjum meiri­hluta, að leysa sitj­andi íbúa­ráð frá störfum og fresta kosn­ingum í ný íbúa­ráð. Verk­efnið var kynnt af Dóru Björt Guð­jóns­dóttur, odd­vita Pírata, sem leiddi stýri­hóp um verk­efnið. Einn íbúi var þá slembival­inn inn í ráðið og var um til­rauna­verk­efni til eins árs að ræða, en rúm fimm ár eru síðan því var komið á lagg­irnar. Þarna er um afger­andi breyt­ingar að ræða sem eru aug­ljós­lega afrakstur samn­inga­við­ræðna nýs meiri­hluta borg­ar­innar sem mun sam­an­standa af Vinstri grænum, Sós­í­alistum, Sam­fylk­ingu, Flokki fólks­ins og svo Pírötum.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Guð hjálpi borgarbúum segi ég bara... ekki veitir þeim af á næstunni.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár