Mátu hvor annan sem hæfasta umsækjandann

Brynjar Níelsson sat í dóm­nefnd­inni sem mat þá Þorgeir Örlygs­son og Eirík Tómasson hæf­asta sem hæsta­rétt­ar­dóm­ara. Nú kom það í hlut Þorgeirs að meta umsækj­endur þegar hann sat í dóm­nefnd­inni sem mat Brynjar hæf­astan.

Mátu hvor annan sem hæfasta umsækjandann
Hæfur Þorgeir Örlygs­son sat í dóm­nefnd­inni sem mat Brynjar hæf­astan. Sjálfur var hann met­inn hæf­astur af dóm­nefnd sem Brynjar sat í.

Brynjar Níelsson hefur verið settur í emb­ætti dóm­ara við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur, eftir að dóm­nefnd um hæfni umsækj­enda í emb­ætti dóm­ara komst að þeirri nið­ur­stöðu að hann væri hæf­astur. Dóm­nefndin er skipuð fimm ein­stak­lingum, þar á meðal Þorgeiri Örlygs­syni, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ara, sem var skip­aður eftir að dóm­nefnd sem Brynjar sat í mat hann hæf­astan. 

Dómnefnd um hæfni umsækj­enda um stöðu dóm­ara er skipuð af dóms­mála­ráð­herra til fimm ára í senn, þó þannig að ár hvert renni út skip­un­ar­tími eins aðal­manns og vara­manns hans. Skipun ráð­herra byggir á til­nefn­ingum frá Hæsta­rétti, Lands­rétti, dóm­stóla­sýsl­unni, Alþingi og Lög­manna­fé­lagi Íslands. 

Það var árið 2021 sem Þorgeir var til­nefndur af dóm­stóla­sýsl­unni og var hann skip­aður af ráð­herra í nóv­em­ber sama ár. Hann hefur því setið í dóm­nefnd­inni í rúm þrjú ár áður en nefndin tók afstöðu …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Ófaglegt og óásættanlegt.
    1
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Ísland er svo krúttlegt :-)
    4
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    "Feðraveldið" afhjúpast hér í sinni skýrustu mynd!
    Hvenær ætlum við að drullast út úr torfkofunum!
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár