Stóðu heiðursvörð við útför Ólafar Töru

Fjöldi fólks stóð heið­ursvörð við Graf­ar­vogs­kirkju í dag þegar Ólöf Tara Harð­ar­dóttir var jarð­sungin. Forseti Íslands, for­sæt­is­ráð­herra og for­seti Alþingis voru meðal þeirra sem vott­uðu henni virð­ingu sína.

Stóðu heiðursvörð við útför Ólafar Töru

Bar­áttu­konan Ólöf Tara Harð­ar­dóttir var jarð­sungin frá Graf­ar­vogs­kirkju í dag. Fjöldi fólks stóð heið­ursvörð við kirkj­una til að votta henni virð­ingu sína. 

Ólöf Tara var kraft­mikil í umræðu um og bar­áttu gegn kyn­bundnu ofbeldi og kom að stofnun tveggja sam­taka, Öfga og Vitundar, sem börð­ust ötul­lega fyrir breyt­ingum í þágu þolenda ofbeldis.

Biskup Íslands, Guðrún Karls Helgu­dóttir, sá um athöfn­ina en meðal þeirra sem voru við­stödd útför­ina voru Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir for­seti Alþingis og Halla Tóm­as­dóttir for­seti Íslands.

Fánar Öfga og Stíga­móta voru uppi við alt­arið í fjöl­mennri athöfn­inni. Þjóð­lagið Sofðu unga ástin mín var flutt á undan ritn­ing­ar­lestri en eft­ir­spilið var lagið Áfram stelpur og stóð í sálma­skrá að kirkju­gestir væri hvattir til að syngja með, en útprent­uðum text­anum var dreift meðal þeirra. Kistan var borin út af konum, meðal ann­ars bar­áttu­systrum Ólafar Töru, þeim Guðnýju S. Bjarna­dóttur og Þórhildi Gyðu Arn­ars­dóttur. 

Ólöf Tara var fædd í Reykja­vík 9. mars 1990 og því á 35. ald­ursári þegar hún lést þann 30. jan­úar. For­eldrar hennar eru Tinna Arn­ar­dóttir og Hörður Örn Harð­ar­son.

Með Öfgum hlaut Ólöf Tara fjöl­mörg verð­laun fyrir vinnu sína, þar á meðal frá Mann­rétt­inda­skrif­stofu Íslands, og hélt mörg erindi í tengslum við kyn­bundið ofbeldi. Öfgar ávörp­uðu meðal ann­ars Sam­ein­uðu þjóð­irnar um kvenna­sátt­mál­ann og fund­uðu með full­trúum Evr­ópu­ráðs­ins um for­varnir og bar­áttu gegn ofbeldi gegn konum og heim­il­is­of­beldi. Barátta hennar sneri ekki síst að því að stöðva byrl­anir og kven­morð.

Heim­ildin / Davíð Þór

Var hún annar tveggja stjórn­enda nýrra hlað­varps­þátta, Dómstóll göt­unnar, þar sem rýnt er í dóma sem falla hér á landi. Nú í jan­úar kom hún að stofnun nýrra sam­taka gegn kyn­bundu ofbeldi, Vitund.

Margir hafa minnst Ólafar Töru á sam­fé­lags­miðlum í dag. Guðný S. Bjarna­dóttir, ein af stofn­endum Vitundar, skrif­aði: „Þakklæti er mér efst í huga þegar ég minn­ist vin­konu minnar Ólafar Töru. Kjarna­konan, visku­brunn­ur­inn og rödd skyn­sem­innar sem ég var svo heppin að eiga að. Það voru algjör for­rétt­indi að fá að kynn­ast þér og hefði ég aðeins óskað að það hefði verið fyrr og varað lengur. Það er bara ein Ólöf Tara Einstök, hjarta­hlý, óeig­in­gjörn og fárán­lega fyndin. Í dag fylgi ég þér sein­asta spöl­inn en þú verður með mér alla tíð“.

Olga Björt Þórð­ar­dóttir er sömu­leiðis ein af þeim sem stofn­uðu Vitund í árs­byrjum með Ólöfu Töru. Hún skrif­aði: „Fljúgðu hátt, elsku Ólöf Tara. Ljós þitt mun skína áfram, orð þín óma og viska þín og reynsla nýt­ast bar­átt­unni um ókomna tíð. Takk fyrir allt sem þú kenndir (mun eldri) mér, ótal sím­tölin og sam­tölin, hlát­ur­sköstin og seigl­una og von­ina sem smit­uð­ust svo auð­veld­lega frá þér. Þar til næst.“

Kolbrún Dögg Arn­ar­dóttir, stjórn­ar­for­maður sam­tak­anna Líf án ofbeldis, bar Ólöfu Töru þakkir í skrifum sínum: „Í dag fylgi ég elsku Ólöfu Töru síð­asta spöl­inn, ljósið sem skein svo skært fyrir okkur þolendur og bálið sem hún kveikti í okkur bar­áttu­systrum. Nú er ljósið þitt slökknað en við ætlum að halda kyndl­inum þínum á lofti í bar­átt­unni fyrir rétt­læti“.

Bar­áttu­kon­urnar Sóley Tóm­as­dóttir og Hildur Lil­lendahl birtu minn­ing­ar­grein þar sem meðal ann­ars kom fram: „Allar fram­farir í þágu mann­rétt­inda hafa byggt á sam­taka­mætti. Ein mann­eskja breytir ekki sam­fé­lagi. En mikið komst Ólöf Tara nálægt því. Ekki af því að hún hafi haft vald eða verið í stöðu til að breyta, heldur af því að hún lagði hjarta sitt og sál í að standa með konum. Ólöf Tara átti frum­kvæði að mik­il­vægum aðgerðum og hún tók þátt í mik­il­vægum aðgerðum. En svo var hún líka full af sam­kennd og skildi betur en margar okkar hvað sam­staðan skiptir miklu máli. Hún sendi ítrekað ófrá­víkj­an­legar kröfur út um allar trissur um að nú þyrfti að standa með ein­hverri af ein­hverjum ástæðum. Og við hlýddum. Allar. Alltaf. Af því þannig var Ólöf Tara.“

Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, skrif­aði að minn­ing Ólafar Töru væri heiðruð með því að halda áfram bar­átt­unni gegn kyn­bundni ofbeldi: „Við­ur­kenna áhrif og afleið­ingar þess, trúa, grípa brota­þola en fyrst og fremst að útrýma kyn­bundnu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Konur þekkja best afleið­ing­arnar og mitt í sorg­inni og van­mætt­inum vakti það með mér von að sjá Forseta Íslands, bisk­upinn, for­sæt­is­ráð­herra, for­seta þings­ins og fleiri og fleiri konur með völd í sam­fé­lag­inu mæta í útför­ina. Að auki var stút­full kirkja af konum sem eru til­búnar í bar­átt­una sem Ólöf Tara gaf svo mikið og senni­lega allt of mikið í. Þó það sé óþol­andi að þessi bar­átta hvíli alltaf á herðum kvenna þá eru það við sem vitum hvað er í húfi að útrýma ofbeldi, við verðum flestar fyrir því. Og núna er stundin, hún er runnin upp! Nú þurfum við að virkja þekk­ingu okkar, sam­taka­mátt, félaga­sam­tökin, stofn­an­irnar, skól­ana, stjórn­málin og almenn­ing. Við þurfum að hafa trú á því að við getum útrýmt kyn­bundnu ofbeldi og við verðum að ganga sam­hljóða inn í þá veg­ferð.“

Fólki með sjálfs­vígs­hugs­anir er bent á upp­lýs­inga­síma heilsu­gæsl­unnar s.1700, net­spjallið heilsu­vera.is, Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins s.1717, á net­spjallið 1717.is og á Píeta sím­ann s.552-2218. Þau sem misst hafa ást­vin í sjálfs­vígi er bent á stuðn­ing í Sorg­ar­mið­stöð s. 551-4141, upp­lýs­inga­síma heilsu­gæsl­unnar s.1700, net­spjallið heilsu­vera.is og á Píeta sím­ann s.552-2218.

Kjósa
51
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár