Meira undir en vilji til að slá eign sinni á herbergi

Hildur Sverr­is­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði ein­hug innan þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins um setu­verk­fall hefði þeim verið gert að skipta um þing­flokks­her­bergi. Sam­fylk­ingin óskaði eftir því að fá stærsta þing­flokks­her­bergið sem Sjálf­stæð­is­menn hafa haft til umráða frá árinu 1941 en fékk það ekki.

Meira undir en vilji til að slá eign sinni á herbergi
Þing­flokks­for­maður Hildur Sverr­is­dóttir segir Sjálf­stæð­is­menn hafa til­finn­inga­lega teng­ingu við her­bergið, í því hanga meðal ann­ars mál­verk af for­setum Alþingis úr röðum flokks­ins. Mynd: Golli

Í gær bár­ust fréttir af því að þing­flokkar Sam­fylk­ingar og Sjálf­stæð­is­flokks væru komnir í hár saman vegna úthlut­unar þing­flokks­her­bergja. Sam­fylk­ingin, sem er stærsti þing­flokk­ur­inn, ásæld­ist stærsta þing­flokks­her­bergið – í því hafa Sjálf­stæð­is­menn verið allt frá 1941 og lýstu yfir þeim ein­dregna vilja að fá að vera þar áfram. 

Í dag var greint frá ákvörðun Rögnu Árna­dóttur skrif­stofu­stjóra að leyfa Sjálf­stæð­is­mönnum að halda her­berg­inu. Ekkert verður því úr setu­verk­fall­inu  

Hildur Sverr­is­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að sam­kvæmt reglum sem settar voru af for­sætis­nefnd þings­ins fái þing­flokkur að halda her­bergjum sínum nema nauð­syn ann­arra þing­flokka kalli á breyt­ingar. „Það er til­tölu­lega nýlegt for­dæmi þar sem 19 manna þing­flokkur var í næst­stærsta her­berg­inu og gat fundað þar. Þá ætti 15 manna þing­flokkur Sam­fylk­ing­ar­innar ekki að eiga í erf­ið­leikum með það,“ segir hún. 

Samfylkingin fékk ekki herbergið 2009

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem þing­flokkur Sam­fylk­ing­ar­innar er stærri en Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Eftir kosn­ing­arnar 2009 voru jafn­að­ar­menn með 20 þing­menn en Sjálf­stæð­is­menn 16. Þá kom til skoð­unar hvort þing­flokkur Sam­fylk­ing­ar­innar ætti að fá her­bergið en hann fékk að lokum stærra her­bergi í við­bygg­ing­unni Skála. 

Sjálf­stæð­is­menn eiga óneit­an­lega langa sögu í her­berg­inu en Hildur segir teng­ing­una einnig til­finn­inga­lega. Til dæmis má þess geta að á veggj­unum hanga mál­verk af fyrr­ver­andi for­setum þings­ins úr röðum Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

„Allar ákvarð­anir hjá þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa verið teknar í þessu her­bergi. Það er ekki nauð­syn til þess að við færum okkur úr þessu her­bergi, af hverju í ósköp­unum er verið að biðja okkur um það?“ spyr Hildur.

Hún segir að ef Sjálf­stæð­is­flokknum hefði verði gert að yfir­gefa her­bergið hefði verið ein­hugur um það að þing­flokk­ur­inn færi í setu­verk­fall. „Hérna er miklu meira undir heldur en að vilja slá eign sinni á eitt­hvert her­bergi. Þetta snýst um að virða þær reglur sem póli­tíkin hér hefur sett sér til að virða lýð­ræð­is­legt umboð og sögu og hefðir þessa húss.“ 

„Ekki hægt að kalla eitt eða neitt“

Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­son, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði við Vísi í gær að óbil­girni Sjálf­stæð­is­manna hafi komið flatt upp á hann. Í hans huga sner­ist þetta um það að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir gætu fengið að vera í kall­færi hver við annan. „Það kemur svo­lítið á óvart að fólk upp­lifi að það eigi fund­ar­að­stöðu í opin­berum bygg­ingum. Ég kann­ast ekki við að fólk telji sig geta haft eign­ar­hald á slíku,“ sagði hann.

Hildur seg­ist vel skilja að það gæti verið huggu­legt að vera nálægt sam­starfs­flokkum en ekk­ert sé nefnt um það í reglum þings­ins. Hún segir einnig að það hafi aldrei verið við­mið um nálægð sam­starfs­flokka þegar raðað er niður í her­bergi. Þá þver­tekur hún fyrir að það sé kall­færi milli her­bergj­anna, líkt og Guð­mundur Ari vísar til.

„Það er her­bergi og svo er hurð og það er gangur og önnur hurð, svo það að vera í kall­færi við einn eða neinn er ekki mögu­leiki. Ég þarf að bjóða Guðmundi Ara hingað og sýna honum að hér er ekki hægt að kalla eitt eða neitt,“ segir Hildur Sverr­is­dóttir. 

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • trausti þórðarson skrifaði
    Það er mikil ónærgætni kjósenda að særa tilfinningar sjálfstæðismanna með þessum hætti.Það er full ástæða til að kanna hvort myndast hafi hefðarréttur til ráðuneyta.
    13
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    2. mgr. 2. gr. laga um hefð nr. 46/1905: "Nú hefir hefðandi fengið hlutinn að veði, til geymslu, til láns eða á leigu, og geta þá slík umráð ekki heimilað hefð."
    9
  • SB
    Steinar Beck skrifaði
    Þetta minnir mann á krakka sem tekur frekjukast í stórmarkaði
    16
  • Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Frekjan og þau hlægilegu en sáru ítök sem þessi mafía hefur ennþá í þjóðfélaginu. Ragna Árnadóttir hefur ekki lagt í þennan slag. Þeir sem geta veikt þessa mafíu er alþýðan! Færum hana niður fyrir 10% í næstu kosningum.
    20
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Hið risavaxna og ógeðfellda egó Sjálfstæðisflokksins opinberast í þessu fáránlega máli. Auðvitað á úthlutun þessara rýma eingöngu að ráðast af stærð þingflokka en ekki frekju og yfirgangs. Það er augljóst.
    22
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár