Halla gefur kost á sér til formennsku í VR

Starf­andi for­maður VR gefur kost á sér til að sitja áfram í því emb­ætti. Halla Gunn­ars­dóttir er fyrst til að bjóða sig fram til for­manns, en kosið verður um emb­ættið og til stjórnar VR í mars­mán­uði.

Halla gefur kost á sér til formennsku í VR
VR Halla Gunn­ars­dóttir er starf­andi for­maður VR.

Halla Gunn­ars­dóttir, starf­andi for­maður VR, hefur gefið kost á sér til þess að halda áfram að leiða félagið. Halla var kjörin í stjórn VR fyrir tveimur árum, hefur gegnt emb­ætti vara­for­manns og tók við for­mennsk­unni eftir að Ragnar Þór Ing­ólfs­son náði kjöri á þing fyrir Flokk fólks­ins undir lok síð­asta árs.

Kosn­ingar til for­manns og stjórnar VR munu fara fram í mars og seg­ist Halla, í fram­boðstil­kynn­ingu, von­ast eftir því að hljóta braut­ar­gengi frá félags­fólki til áfram­hald­andi setu sem for­maður. Hún sé bara rétt að byrja.

„VR félagar vinna bæði fjöl­breytt og verð­mæt störf og halda uppi litlum sem stórum fyr­ir­tækjum á almennum mark­aði. Hluti VR-inga starfar eftir töxtum og grunn­tíma­kaup hefur ekki hækkað sem skyldi. Meiri­hluti félags­fólks VR semur sjálft um kjör sín en nýtur stuðn­ings af almennum kjara­samn­ingum og þeim hækk­unum og rétt­indum sem þar er samið um. Allir VR félagar eiga það sam­eig­in­legt að njóta góðs af því að til­heyra stóru og öfl­ugu félagi sem veitir fyr­ir­taks þjón­ustu og berst fyrir þeirra kjörum og hags­munum. Þá bar­áttu vil ég gjarnan leiða,“ segir Halla meðal ann­ars í fram­boðs­yf­ir­lýs­ingu sinni.  

Þar seg­ist hún hafa starfað innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar í fimm ár og búa yfir fjöl­breyttri reynslu af vinnu­mark­aði og félags­störfum.

„Ég hef starfað sem sér­fræð­ingur, skrif­stofu­kona, fram­kvæmda­stjóri, aðstoð­ar­maður ráð­herra, blaða­maður, verk­efna­stjóri, lag­er­starfs­maður, fót­bolta­þjálf­ari, milli­stjórn­andi og afgreiðslu­kona. Ég hef alla tíð verið virk í félags­störfum og á mér ótelj­andi áhuga­mál. Ég bý í Reykja­vík með fjöl­skyld­unni minni en hjarta mitt býr líka að hluta til í London og að hluta á Aust­fjörðum,“ segir einnig, í til­kynn­ingu Höllu.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár