Forstjóri TikTok mætir

TikTok er komið aftur upp í Banda­ríkj­unum eftir að hafa lokað þar tíma­bundið í dag. Í yfir­lýs­ingu þakkar TikTok við­leitni Donalds Trump til að bjarga for­rit­inu, en hann verður settur í emb­ætti for­seta á morgun. Trump vildi eitt sinn banna TikTok en nú telur hann sam­fé­lags­mið­il­inn hafa haft mikil áhrif á hversu vel honum tókst að ná til yngstu kjós­end­anna.

Forstjóri TikTok mætir

Shou Chew, for­stjóra TikTok, hefur verið boðið að vera við­staddur emb­ætt­is­töku Donalds Trump sem Banda­ríkja­for­seta og sitja á meðal fyrr­ver­andi for­seta lands­ins. Þetta markar óvænta stefnu­breyt­ingu Trumps gagn­vart TikTok, sem hann reyndi að banna árið 2020. 

Eftir að hann var kjör­inn for­seti í lok síð­asta árs sagð­ist hann á blaða­manna­fundi vera orð­inn hrif­inn af TikTok, og að hann telji sam­fé­lags­mið­il­inn eiga þátt í því hversu vel hann náði til yngstu kjós­end­anna í kosn­inga­bar­átt­unni. 

Banda­ríkja­þing sam­þykkti lög á síð­asta ári sem kröfð­ust þess að kín­verska móð­ur­fé­lagið ByteDance selji TikTok til fyr­ir­tækis utan Kína fyrir 19. jan­úar, ann­ars verði appið bannað í Banda­ríkj­unum. Þetta leiddi til þess að TikTok varð óvirkt fyrir banda­ríska not­endur tíma­bundið. Trump hefur lofað að bjarga for­rit­inu í Banda­ríkj­unum eftir að hann tekur við emb­ætti, sem er á morgun þann 20. jan­úar. Hann hefur íhugað að veita 90 daga frest til að semja um sölu eða aðra lausn sem myndi leyfa TikTok að starfa áfram í Banda­ríkj­unum.

Trump hefur einnig lýst því yfir að hann telji mik­il­vægt að TikTok haldi áfram að starfa í Banda­ríkj­unum til að tryggja sam­keppni við aðra sam­fé­lags­miðla. Hann hefur sér­stak­lega nefnt að án TikTok myndi Facebook njóta of mik­illa yfir­burða. Þrátt fyrir þessa afstöðu hefur Trump áður lýst yfir áhyggjum af öryggisógnum tengdum TikTok, en virð­ist nú frekar hlynntur því að finna lausn sem leyfir áfram­hald­andi starf­semi for­rits­ins í Banda­ríkj­unum

Hann hefur sagst ætla að gefa út for­seta­úr­skurð, þegar hann hefur tekið við emb­ætti, um að fresta bann­inu og veita ByteDance tíma til að finna kaup­anda sem er Banda­ríkj­unum hlið­hollur. Þá hefur hann einnig lagt til að banda­ríska ríkið færi með helm­ings eign­ar­hlut í fyr­ir­tæk­inu til að halda því gang­andi. 

Eftir að TikTok lok­aði í Banda­ríkj­unum í dag, og var óað­gengi­legt Banda­ríkja­mönnum í gegn um Apple Store og Google Play í um tólf klukku­tíma, er það komið þar upp aftur. Í til­kynn­ingu sagði TikTok að það væri komið aftur þökk sé við­leitni Trump til að bjarga því. 

Trump skrif­aði á Truth Social, sam­fé­lags­miðil sinn, að samn­ingur um að bjarga TikTok með því að koma því í „góðar hendur” geti tryggt að það starfi áfram í Banda­ríkj­unum. Þá skrif­aði hann einnig að án sam­þykkis Banda­ríkj­anna gæti fyr­ir­tækið þurft að hætta rekstri, en með sam­þykki Banda­ríkj­anna gæti virði þess auk­ist gríð­ar­lega. Trump und­ir­strik­aði þetta með orð­unum: „SAVE TIKTOK“ eða Björgum TikTok.

Í aðdrag­anda TikTok-banns­ins var hins vegar gríð­ar­legur fjöldi Banda­ríkja­manna sem færði sig yfir á annan kín­verskan sam­fé­lags­miðil, Xia­ohongshu. Nafnið merkir Lítil rauð bók, en á ensku er for­ritið gjarnan kallað ein­fald­lega RedNote.

RedNote var stofnað 2013 og er með yfir 300 milljón not­endur, en því var á tíma­bili lýst sem svari Kína við Instagram. Það hefur hins vegar notið afar tak­mark­aðra vin­sælda utan Kína, þar til nú.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár