Ráðningarsamningur heimilar hljóðupptökur af starfsfólki

Ráðn­ing­ar­samn­ingur SVEIT, sem byggir á kjara­samn­ingi „gervi­stétt­ar­fé­lags­ins“ Virð­ingar, heim­ilar hljóð­upp­tökur af starfs­fólki ásamt annarri raf­rænni vöktun. Per­sónu­vernd segir ekki hafa reynt á þannig mál. Eina for­dæmið er Klaust­urs­málið, þar sem úrskurðað var að hljóð­upp­takan væri ólög­mæt.

Ráðningarsamningur heimilar hljóðupptökur af starfsfólki
108 fyr­ir­tæki í veit­inga­húsa­rekstri eru í Sveit en þeim fer ört fækk­andi sam­kvæmt Eflingu. Mynd: Shutterstock

Heim­ildin hefur undir höndum ráðn­inga­samn­ing Virð­ingar og SVEIT við starfs­fólk sitt og má þar sjá umdeild skil­yrði um raf­ræna vöktun. Auk þess að sæta mynda­véla­eft­ir­liti má starfs­fólk búast við hljóð­ritun að auki á meðan það er við störf. Per­sónu­vernd hefur úrskurðað í slíku máli einu sinni, það var Klaust­urs­mál­inu, og var þá hljóð­rit­unin úrskurðuð ólög­mæt á þeim for­sendum að um brot á frið­helgi einka­lífs­ins væri að ræða. Grunn­for­sendan var sú að hljóð­ritun stæði yfir í langan tíma.

Hljóðritun brot á friðhelgi einkalífsins

Þegar haft var sam­band við per­sónu­vernd feng­ust þau svör að það hefði ekki reynt á sams­konar mál þar sem starfs­maður er hljóð­rit­aður. Ef litið er til Klaust­urs­máls­ins má ætla að nið­ur­staðan yrði sams konar. Á það var bent að ef starfs­fólk sætir raf­rænni vöktun, þarf að kynna þeim það skil­merki­lega. Fræðsla er grund­vall­ar­at­riði.

Efling ásamt fleiri stétt­ar­fé­lögum hefur gagn­rýnt Virðingu, stétt­ar­fé­lag SVEIT, sem eru sam­tök …

Kjósa
41
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    SVEIT virðist samkvæmt þessu vera samtök svíðinga og ofbeldisfólks. Þetta fólk ætti einfaldlega að skammast sín.
    12
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár