„Mér líður hrikalega vel“

Jóhann Páll Jóhanns­son er ánægður með upp­skeru Sam­fylk­ingar í kosn­ing­unum, það sem af er nóttu. Hann þorir ekki að spá hvernig loka­nið­ur­staðan verður þó hann sé bjart­sýnn: „Ég vil ekki jinxa.“

„Mér líður hrikalega vel“
Jóhann Páll og Kristrún fögn­uðu saman á kosn­inga­vöku Sam­fylk­ing­ar­innar þar sem er mikil stemn­ing. Mynd: Golli

Jóhann Páll Jóhanns­son, odd­viti Sam­fylk­ingar í Reykja­vík suður og fyrsti þing­maður kjör­dæm­is­ins er gríð­ar­lega ánægður með stöð­una miðað við þau atkvæði sem talin hafa verið. Flokk­ur­inn er stærstur á lands­vísu eins og staðan er, og bætir við sig tíu pró­sentu­stigum í kjör­dæm­inu. 

„Mér líður hrika­lega vel,“ sagði Jóhann Páll í sam­tali við blaðmann Heim­ild­ar­innar á kosn­inga­vöku Sam­fylk­ing­ar­innar sem haldin er í Kola­port­inu. „Þetta lítur vel út, enn sem komið er að minnsta kosti,“ segir hann. 

Atkvæðin sem Sam­fylk­ingin er að fá upp úr kjör­köss­unum er honum gleði­efni. Hann seg­ist þó hafa verið hæfi­lega bjart­sýnn og ekki alveg vitað fyr­ir­fram við hverju hann ætti að búast, þrátt fyrir gott gengi í skoð­ana­könn­unum. 

Er þetta betra en þú þorðir að vona?
„Að ein­hverju leyti, kannski. Mér finnst við svo­lítið að vera að upp­skera eftir vinnu síð­ustu ára,“ sagði hann en þorði ekki að spá fyrir um hvort þetta myndi hald­ast eftir því sem meira yrði talið af atkvæðum: „Ég þori ekki að spá neinu. Ég vil ekki jinxa,“ segir hann og vill því ekki storka örlög­unum.

Jóhann Páll þakkar árang­ur­inn í kjör­dæm­inu ekki síst því fólki sem leiðir list­ann. „Þetta er svo öfl­ugt fólk sem við erum með. Við erum með Rögnu Sig­urð­ar­dóttur lækni, Kristján Þórð iðn­að­ar­mann og for­mann Rafið­an­ar­sam­bands­ins, og Sig­ur­þóru Bergs sem hefur byggt upp Bergið Headspace sem hefur hjálpað þús­undum ung­menna. Þetta er eðal­fólk og ég er ekki hissa á að þessi listi hljóti góðan hljóm­grunn.“

Hér má nálg­ast töl­fræði um kosn­ing­arnar með nýj­ustu upp­lýs­ingum í graf­ískri fram­setn­ingu á vef Heim­ild­ar­innar.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár