„Þjóðin er byrjuð að svara fyrir sig“

Kristrún Frosta­dóttir upp­skar mikil fagn­að­ar­læti þegar hún steig á svið á kosn­inga­vöku Sam­fylk­ing­ar­innar. Flokk­ur­inn hefur bætt gríð­ar­lega við sig frá síð­ustu kosn­ingum, ef miðað er við nýj­ustu tölur. Kristrún minnti stuðn­ings­folk þó á að nóttin væri ung.

„Þjóðin er byrjuð að svara fyrir sig“
Kristrún Frosta­dóttir fagn­aði þegar fyrstu tölur voru birtar. Kosn­inga­vaka Sam­fylk­ing­ar­innar er í Kola­port­inu þar sem er fjöl­menn gleði Mynd: Golli

„Það er aug­ljóst ákall um breyt­ingar,“ sagði Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, þegar hún ávarp­aði gesti á kosn­inga­vöku flokks­ins í Kola­port­inu fyrir skömmu. „Það verða breyt­ingar á stjórn lands­manna, það er aug­ljóst,“ sagði hún. 

Sam­fylk­ingin var iðu­lega stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum í aðdrag­anda kosn­inga og miðað við fyrstu tölur hefur hún bætt gríð­ar­legu fylgi við sig frá kosn­ing­unum 2021. 

Mikil fagn­að­ar­læti brut­ust út þegar Kristrún steig á svið en hennar fyrstu orð í ræð­unni, þegar fyrstu tölur höfðu verið birtar í þremur kjör­dæmum, voru: „Halló jafn­að­ar­fólk!“ og upp­skar hún mikið klapp. 

Kristrún sagði við stuðn­ings­fólk flokks­ins á kosn­inga­vök­unni að und­an­farnar vikur hefðu verið hreint ótrú­legar: „Þvílikur kraftur í jafn­að­ar­fólki, því­líkur kraftur í fram­bjóð­endum. Þetta er fárán­lega spenn­andi. Ég er bara svo stolt af okkur öllum og því sem við höfum áorkað nú þegar,“ sagði hún. 

Kristrún hvatti fólk til að vera með fæt­urna á jörð­inni, ennþá væri verið að telja atkvæði, en staðan liti vel út. 

„Þjóðin er byrjuð að svara fyrir sig,“ sagði hún, með vísan í ákall um breyt­ingar og kvaddi með orð­unum: „Áfram gakk“.

Hér má nálg­ast töl­fræði með nýj­ustu upp­lýs­ingum í graf­ískri fram­setn­ingu á vef Heim­ild­ar­innar.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár