Reykvíkingar færa Samfylkingunni forystuna

„Þjóðin er búin að sýna það að hún vill sjá breyt­ingar,“ sagði Kristrún Frosta­dóttir, en fyrstu tölur í Reykja­vík færa flokknum for­ystu á lands­vísu. Ráð­herrar í frá­far­andi rík­is­stjórn detta af þingi.

Reykvíkingar færa Samfylkingunni forystuna

„Þjóðin er búin að sýna það að hún vill sjá breyt­ingar,“ sagði Kristrún Frosta­dóttir fyrr í kvöld en eftir fyrstu tölur frá Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur fær Sam­fylk­ingin lang mesta fylgið þar, nær for­ystu á lands­vísu og bætir við sig tíu nýjum þing­mönnum.

Nú þegar búið er að lesa fyrstu tölur í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður og norður er ljóst að staða Vinstri grænna er ansi slæm. Flokk­ur­inn sem fékk fjóra þing­menn í þessum kjör­dæmum árið 2021 missir þá alla, en þeirra á meðal eru for­mað­ur­inn Svandís Svav­ars­dóttir og þing­flokks­for­mað­ur­inn Orri Páll Jóhanns­son. Sama staða er uppi á lands­vísu. Nú þegar búið er að telja 68.174 atkvæði á lands­vísu hefur flokk­ur­inn, sem setið hefur í rík­is­stjórn frá árinu 2017, ekki enn náð einu sæti á þingi. 

Annar ráð­herra er á leið út af þingi sam­kvæmt þessum fyrstu tölum úr Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum, Ásmundur Einar Daðason barna­mála­ráð­herra, því Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn missir sinn mann í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður. Lilja Alfreðs­dóttir kemur hins vegar inn sem upp­bót­ar­þing­maður í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður. Á lands­vísu fellur Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn úr því að vera með þrettán þing­menn í fimm, eins og staðan er núna. For­mað­ur­inn, Sigurður Ingi Jóhanns­son, fellur af þingi, eins og staðan er núna. 

Viðreisn bætir við sig þing­manni í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum er og er sam­tals með fjóra þing­menn. Ef fram fer sem horfir verður Jón Gnarr þing­maður Við­reisnar á næsta kjör­tíma­bili, ásamt þeim Þor­björgu Sigríði Gunn­laugs­dóttur, Hönnu Katrínu Frið­riks­dóttur og Pawel Bartoszek. 

Fleiri tíð­inda er að finna í þessum tölum. Samkvæmt þeim nær Mið­flokk­ur­inn inn manni í Reykja­vík norður, sem þýðir að Sigríður Á. Andersen er á leið aftur á þing. Í Reykja­vík suður heldur flokk­ur­inn áfram einu sæti, en þar er Snorri Másson odd­viti.  

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn heldur sínum þing­manna­fjölda, þar sem hann missir þing­mann í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður en bætir einum við í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður. Samtals eru þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík fimm tals­ins. Það eru þau Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, Hildur Sverr­is­dóttir þing­flokks­for­maður, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son og Diljá Mist Ein­ars­dóttir inn sem kjör­dæma­kjörnir þing­menn. Brynjar Níelsson kemur hins vegar inn sem upp­bót­ar­þing­maður. 

Það á einnig við um Dag­björtu Hákon­ar­dóttur í Sam­fylk­ing­unni. Samkvæmt fyrstu tölum í Reykja­vík bætir Sam­fylk­ingin við sig tveimur þing­mönnum í báðum kjör­dæm­unum, og fer frá þremur í sjö þing­menn í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum báðum.  

Kjör­dæma­kjörnir þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík norður eru for­mað­ur­inn Kristrún Frosta­dóttir, Dagur B. Egg­erts­son, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, og Þórður Snær Júl­í­us­son, sem hefur lýst því yfir að hann muni ekki taka sæti á Alþingi nái hann kjöri. Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður leiðir lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, en auk hans ná sæti Ragna Sig­urð­ar­dóttir læknir og Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son, for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands­ins.

Flokkur fólks­ins heldur sinni stöðu í Reykja­vík með einn mann í sitt­hvoru kjör­dæm­inu, þau Ingu Sæland og og Ragnar Þór Ing­ólfs­son. 

Píratar virð­ast hins vegar vera á leið út af þingi. Þeir ná ekki manni inn í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum, frekar en ann­ars staðar. Sós­í­alista­flokk­ur­inn hafa heldur ekki haft erindi sem erf­iði, með 3,8 pró­senta fylgi á lands­vísu.

Hér má fylgj­ast með þróun atkvæða í nótt

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár