Allir forsetaframbjóðendur nema einn horfa fram á afhroð í þingkosningum

Aldrei hafa fleiri for­seta­fram­bjóð­endur gefið kost á sér til alþingis og í ár. Fjórir fram­bjóð­endur reyna að ná hylli kjós­enda með nokkuð eins­leitum árangri. Tveir eru lík­legir inn á þing, Jón Gnarr sem er í Viðreisn og Halla Hrund Loga­dóttir, sem leiðir lista Fram­sóknar í Suð­ur­kjör­dæmi, sem er þó langt fyrir neðan kjör­fylgi. Minni líkur eru á að hinir tveir kom­ist inn. Stjórn­mála­fræð­ingur segir him­inn og haf á milli for­seta- og alþing­is­kosn­inga.

Allir forsetaframbjóðendur nema einn horfa fram á afhroð í þingkosningum
For­seta­fram­bjóð­endur virð­ast eiga erfitt upp­dráttar í þing­kosn­ingum eftir að hafa sumir hverjir fengið drjúgan hluta þjóð­ar­innar til þess að kjósa sig í for­seta­kosn­ingum.

Fjórir for­seta­fram­bjóð­endur eru í fram­boði þessa stund­ina en allir flokk­arnir sem þeir bjóða sig fram fyrir, utan einn, eru ýmist í fall­hættu eða langt fyrir neðan kjör­fylgi. Það hafa aldrei verið jafn margir for­seta­fram­bjóð­endur í kjöri til Alþingis áður.

Fram­bjóð­end­urnir eru Arnar Þór Jónsson, sem fer fyrir Lýð­ræð­is­fylk­ing­unni sem vantar tölu­vert upp á að nái inn á þing. Þá er Viktor Trausta­son í þriðja sæti í Norð­aust­ur­kjör­dæmi fyrir Pírata. Hann sótt­ist eftir að leiða lista Pírata en hafði ekki erindi sem erf­iði. Píratar mæl­ast ýmist rétt svo inni á þingi og utan og því óhætt að segja að þeir séu í raun­veru­legri fall­hættu.

Halla Hrund skákar formanni

Líklega eru mestu við­brigðin í Suð­ur­kjör­dæmi þar sem Halla Hrund Loga­dóttir, fyrr­ver­andi orku­mála­stjóri og for­seta­fram­bjóð­andi, leiðir lista Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hún skákar sjálfum for­manni flokks­ins, Sigurði Inga Jóhann­essyni, sem gaf eftir odd­vita­sætið og fyrir vikið stefnir í að hann nái ekki á þing sam­kvæmt könn­unum en flokk­ur­inn er að mæl­ast langt fyrir neðan kjör­fylgi. Samkvæmt kosn­inga­spám má ætla að flokk­ur­inn hald­ist inni á þingi.

Halla Hrund var sig­ur­lík­leg í for­seta­kosn­ing­unum síð­asta vor og mæld­ist með hæsta fylgið lengst af í bar­átt­unni. Það tók að síga þegar á leið á bar­átt­una og má segja að hún hafi goldið fyrir taktíska kosn­ingu kjós­enda sem vildu ekki sjá Katrínu Jak­obs­dóttur sem for­seta. Atkvæðin fóru því að lokum til nöfnu hennar Höllu Tóm­as­dóttur, sem vann for­seta­kosn­ingar með nokkrum yfir­burðum.

Gekk sæmilega í forsetakosningum, en skarar nú fram úr

Aðeins einn for­seta­fram­bjóð­andi sker sig úr þessum hópi, sem er Jón Gnarr sem situr í öðru sæti í Reykja­vík suðri. Hann er einnig ólíkur öðrum fram­bjóð­endum að því leyti að hann sat sem borg­ar­stjóri í Reykja­vík í fjögur ár og er því ekki óvanur hinu póli­tíska ati.

„Þetta dregur kannski helst fram hvað for­seta­kosn­ingar eru sér­kenni­legar,“ segir Eiríkur Bergmann stjórn­mála­fræð­ingur spurður hvers vegna for­seta­fram­bjóð­endum gangi ekki betur í kosn­ing­unum. Þegar litið er til for­seta­kosn­ing­anna þá fékk Halla Hrund um 15 pró­sent í for­seta­kosn­ing­unum, eða 33 þús­und atkvæði. Arnar Þór hefði náð inn á þing ef hann hefði náð sama árangri og í for­seta­kosn­ing­unum en hann náði rétt um fimm pró­sentum eða um tíu þús­und atkvæðum. Nú mælist hann í um einu pró­senti sem leið­togi Lýð­ræð­is­flokks­ins.

Viktori farn­að­ist þó ekki vel og end­aði vel undir einu pró­senti í for­seta­kosn­ing­unum, en aðeins 392 studdu hann. Jón Gnarr náði tíu pró­sentum atkvæða í kosn­ing­unum eða tíu þús­und atkvæðum og end­aði fjórði efsti í for­seta­fram­boð­inu af tólf fram­boðum.

Allt önnur lögmál í gangi

„Það er ekki aug­ljóst að for­seta­fram­boð nýt­ist sem stökk­pallur á Alþingi,“ segir Eiríkur. „Það eru bara allt önnur lög­mál í gangi. Við leggjum allt of mikið upp úr umfjöllun um ein­staka fólk og ein­staka mál, en rann­sóknir sýna að ein­staka fram­bjóð­endur skipta kjós­endur litlu máli,“ bætir hann við.

„Fólk hefur sæmi­legan skiln­ing á því hvernig lífs­skoðun þess fellur að stefnu stjórn­mála­flokka, það ræður atkvæð­inu, því rann­sóknir sýna að kjós­endur eru skyn­samir,“ segir Eiríkur. Í stuttu máli; ef ein­hver teldi sig geta tekið stuðn­ing í for­seta­kosn­ingum með sér inn í alþing­is­kosn­ingar væri það fjarri lagi. Þetta hefur helst áhrif á stöðu for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins sem eft­ir­lét Höllu Hrund fyrsta sætið í Suð­ur­kjör­dæmi. Síðustu kann­anir sýna að hann nái ekki kjöri og það hefur verið haft á orði að Halla Hrund sé ekki áber­andi í kosn­inga­bar­átt­unni, hvort sem það er rétt eða ekki.

„Ég held að þetta ráð­ist bara af því hvernig við­kom­andi ein­stak­lingur passi inn í flokk­ana sem ræður mati kjós­enda,“ segir Eiríkur og bætir við að lokum, og dregur kannski saman í leið­inni ómögu­leika þess að bera þessar tvær kosn­ingar saman: „Það er bara him­inn og haf á milli for­seta­kosn­inga og alþing­is­kosn­inga.“

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár