„Sjálfsagt verða báðir jafn óánægðir með niðurstöðuna“

Eini stjórn­ar­mað­ur­inn í stjórn Vatna­jök­uls­þjóð­garðs sem lagð­ist gegn opnun Von­ar­skarðs fyrir vél­knúna umferð segir málið hafa verið keyrt í gegn nú rétt fyrir kosn­ingar af for­manni og vara­for­manni sem skip­aðir voru af umhverf­is­ráð­herra sem stendur í kosn­inga­bar­áttu. Formaður stjórn­ar­innar hafnar þessu alfarið og segir að eng­inn póli­tískur þrýst­ingur hafi verið til staðar.

„Sjálfsagt verða báðir jafn óánægðir með niðurstöðuna“
Von­ar­skarð Mikið hefur verið deilt um skarðið og hvort fólk eigi að fá þar að keyra eður ei. Mynd: Landvernd

Stjórn Vatna­jök­uls­þjóð­garðs sam­þykkti á auka­fundi í gær að ráð­ast í breyt­ingar til þess að opna fyrir vél­knúna umferð um Von­ar­skarð. Málið hefur verið deilu­efni í 14 ár og segir eini full­trú­inn í stjórn sem greiddi atkvæði gegn til­lög­unni að málið hafi verið keyrt í gegn, nú rétt fyrir kosn­ingar. Formaður stjórnar vísar því á bug að málið hafi nokkuð með póli­tík að gera.

Óheimilt hefur verið að aka um svæðið frá stofnun Vatna­jök­uls­þjóð­garðs árið 2009. Hópur úti­vist­ar­manna, sér­stak­lega þeirra í ferða­klúbbnum 4x4 og Samút, hefur talað fyrir opnun skarðs­ins fyrir umferð bíla. Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök hafa aftur á móti mót­mælt slíkum áformum og sagt að akstur um svæðið muni valda of miklu raski. 

Í þau fjórtán ár sem málið hefur verið þrætu­epli hefur stjórn Vatna­jök­uls­þjóð­garðs ályktað að lág­marki sjö sinnum að ekki skuli heim­ila akstur í gegnum Von­ar­skarð.

„Það er sér­stakt rann­sókn­ar­efni hvernig eitt mál getur hafa kom­ist jafn­oft …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SHP
    Sigrún H. Pálsdóttir skrifaði
    Ég tek undir að þessi ákvörðun stjórnar er feigðarflan. Fyrir nokkrum árum lenti ég þarna í ofsaveðri í byrjun ágúst sem ekki hafði verið spáð fyrir um. Sem betur fer var björgunarsveitin á næstu grösum og kom hún hópnum til hjálpar.
    Þetta svæði er auk þess skilgreint sem víðerni sem er fágæt náttúruauðlind í Evrópu. Svæðið missir þá stöðu sé Vonarskarð opnað fyrir bílaumferð. Náttúruverndargildi þjóðgarðsins í heild mun þar af leiðandi minnka. Ákvörðun stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs er því með öllu óskiljanleg.
    7
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Það ekkert annað en spilling í þessu máli eins og öllu sem svona nefndir koma nálægt ? Hver er umhverfisráðherran sem um ræður ? Ekki Guðlaugur Þór ? Mesti spillingarpési sem er til í pólitík á Íslandi !
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár