Mistök ástæða bilunar Nesjavallavirkjunar

Nesja­valla­virkjun er að eld­ast og und­an­farið hafa staðið yfir miklar og flóknar end­ur­bætur á stjórn­kerfum hennar. Við þá vinnu voru gerð mis­tök sem urðu til þess að virkj­un­inni sló út og fram­leiðslan lá niðri í nokkrar klukku­stundir.

Mistök ástæða bilunar Nesjavallavirkjunar
Öldungur Nesja­valla­virkjun var reist í lok níunda ára­tugar síð­ustu aldar. Hún á mikið inni en þarfn­ast við­halds. Mynd: Guide to Iceland

 Bilun sem varð í Nesja­valla­virkjun að morgni 9. októ­ber má rekja til mis­taka að sögn Lilju Bjarkar Hauks­dóttur, sam­skipta­stýru Orku nátt­úr­unnar. Útleys­ing varð á öllum þremur vélum virkj­un­ar­innar og lá fram­leiðsla hennar á raf­magni og heitu vatni niðri þar til síð­degis sama dag.  

„Virkj­unin er að eld­ast og und­an­farið hafa staðið yfir miklar og flóknar end­ur­bætur á stjórn­kerfum hennar til að tryggja öruggan og stöðugan rekstur til fram­tíðar,“ skrifar Lilja í svari við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar. „Greining á orsökum bil­un­ar­innar hefur leitt í ljós að upp­haf hennar megi rekja til vinnu við end­ur­nýjun varn­ar­bún­aðar, þar sem mis­tök voru gerð í und­ir­bún­ingi verks­ins við að tryggja mögu­leg áhrif á rekstur.“ Í kjöl­farið hefur að sögn Lilju staðið yfir vinna við end­ur­skoðun á verk­ferlum og verk­lagi til þess að tryggja að sam­bæri­legt atvik komi ekki upp í fram­tíð­inni. 

Er bil­unin varð þann 9. októ­ber varð að grípa til skerð­inga á raf­orku hjá not­endum sem eru með skerð­an­lega samn­inga við Orku nátt­úr­unnar. Það þýddi t.d. að sund­laugum var lokað. Allir voru hvattir til að spara heita vatnið.  

1.640 lítrar af heitu vatni á sekúndu

Fram­kvæmdir við Nesja­valla­virkjun hófust árið 1987 en orku­verið var form­lega tekið í notkun 29. sept­em­ber 1990.

Virkj­unin er norðan við Hengil­inn og fram­leiðir heitt vatn og raf­magn. Hún getur fram­leitt allt að 300 MW í varma­orku sem eru um 1.640 l/sek af heitu vatni og allt að 120 MW af raf­magni. 

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár