17 ára piltur lést í eldsvoða á Stuðlum

Alvar­legt atvik varð á Stuðlum í morgun þegar eldur kom upp á neyð­ar­vistun með þeim afleið­ingum að barn lést og starfs­maður slas­að­ist. For­stjóri Barna- og fjöl­skyldu­stofu vottar aðstand­endum barns­ins sína dýpstu samúð.

17 ára piltur lést í eldsvoða á Stuðlum

„Öll vinna á heim­ilum og stofn­unum Barna- og fjöl­skyldu­stofu miðar að því að öryggi barna og starfs­fólks sé tryggt. Stofn­unin harmar að það hafi ekki tek­ist í dag og er í djúpri sorg yfir þessu alvar­lega atviki,“ segir í til­kynn­ingu frá for­stjóra Barna- og fjöl­skyldu­stofu, Ólöfu Ástu Farest­veit, vegna elds­voða sem kom upp á neyð­ar­vistum Stuðla í morgun með þeim afleiðngum að 17 ára piltur, sem þar var vistaður, lést og starfs­maður slas­að­ist. „Ég votta aðstand­endum barns­ins mína dýpstu samúð,“ segir Ólöf einnig.

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að aðgerðir frá því í morgun, þegar eld­ur­inn kom upp, hafi miðað að því að tryggja áfram öryggi og vel­ferð allra sem málið snerti. Gerðar hafa verið ráð­staf­anir fyrir börnin sem voru vistuð á Stuðlum og áfallateymi Rauða kross­ins kallað til. Lög­reglan fer með rann­sókn máls­ins.

„Ljóst er að hús­næði Stuðla er skemmt og ekki unnt að halda þar úti hefð­bund­inni þjón­ustu. Búið er að gera sam­komu­lag við SÁÁ um tíma­bundin afnot af hús­næði á Vogi, þar hefur verið hliðrað til svo hægt sé að bregð­ast við stöð­unni á meðan unnið er að við­gerðum á Stuðlum. Um er að ræða hús­næði sem er unnt að aðskilja frá almennri starf­semi þar sem sér­fræð­ingar Stuðla og Barna- og fjöl­skyldu­stofu munu hlúa áfram að börn­unum. 

Við­gerðum á Stuðlum verður flýtt eins og unnt er og áhersla lögð á að ljúka upp­bygg­ingu ann­arra með­ferð­ar­úr­ræða sem unnið hefur verið að. Fyrir hönd Barna- og fjöl­skyldu­stofu þakka ég við­bragðs­að­ilum og barna­vernd­ar­þjón­ustum sveit­ar­fé­laga fyrir við­brögð þeirra í morgun. Ég þakka um leið SÁÁ fyrir skjót við­brögð og stuðn­ing,“ segir í til­kynn­ingu Ólafar. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár