Bjarni Jónsson hættur í VG

Bjarni Jónsson, odd­viti Vinstri grænna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, er hættur í flokknum og hefur sagt skilið við þing­flokk­inn. Hann greinir frá þessu í dag og segir ver­una í VG orðna þung­bæra veg­ferð fyrir fólk með lands­byggð­ar­hjarta.

Bjarni Jónsson hættur í VG
VG Bjarni Jónsson hefur setið á þingi fyrir Vinstri græn frá 2021 en var þar áður sveit­ar­stjórn­ar­maður flokks­ins í Skaga­firði. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Jónsson odd­viti VG í Norð­vest­ur­kjör­dæmi er hættur í flokknum og hefur ákveðið að segja skilið við þing­flokk­inn. Frá þessu segir hann í færslu á Facebook.

Þar kemur fram að ákvörðun hans hafi legið fyrir í nokkurn tíma, en að hann hafi kosið með að bíða með að greina frá henni þar til búið væri að rjúfa þing og ákveða kjör­dag. 

Í færslu sinni segir Bjarni að „flestum“ hafi „lengi verið ljóst“ að flokk­ur­inn hafi „sveigt af leið og brugð­ist grunn­gildum sínum og vænt­ingum þeirra sem stóðu að stofnun hans“.

„Hann hefur brugð­ist mörgu því fólki sem hefur stutt hann. Á síð­ustu vikum og mán­uðum hef ég styrkts í þeirri trú að ég eigi ekki sam­leið með VG, þar sé ekki far­vegur fyrir hug­sjónir og mörg þau brýn­ustu mál sem ég hef barist fyrir og var kos­inn til og ljóst að veran í VG hefur ekki síst …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár