Stofnfrumur sneru við sykursýki í fyrsta sinn

Kona með syk­ur­sýki eitt byrj­aði að fram­leiða sitt eigið insúlín innan við þremur mán­uðum eftir að hún fékk græddar í sig end­ur­for­rit­aðar stofn­frumur. Er þetta í fyrsta sinn sem tek­ist hefur að snúa við syk­ur­sýki með slíkri með­ferð. „Ég nýt þess að borða hvað sem er,“ segir konan.

Stofnfrumur sneru við sykursýki í fyrsta sinn
Mælingar Kona með syk­ur­sýki mælir blóð­syk­ur­inn sinn. Myndin er úr safni og teng­ist frétt­inni því ekki með beinum hætti. Mynd: AFP

Kona með syk­ur­sýki eitt byrj­aði að fram­leiða sitt eigið insúlín innan við þremur mán­uðum eftir að hún fékk ígræðslu með end­ur­for­rit­uðum stofn­frumum.

Frum­urnar komu úr hennar eigin lík­ama og er konan, sem er 25 ára gömul, fyrsta mann­eskjan með sjúk­dóm­inn sem er með­höndluð með þessum hætti.

„Ég get borðað sykur núna,“ sagði konan, sem býr í Tianjin í Kína, við vís­inda­tíma­ritið Nature. Rúmt ár er liðið síðan stofn­fum­urnar voru græddar í hana. „Ég nýt þess að borða hvað sem er.“

James Shapiro, ígræðslu­skurð­læknir og vís­inda­maður við háskól­ann í Alberta í Kanada, segir að árang­ur­inn af aðgerð­inni sé ótrú­legur. „Þeim hefur tek­ist að snúa algjör­lega við syk­ur­sýki sjúk­lings­ins sem þurfti á veru­legu magni af insúl­íni að halda áður.“

Rannsókn á ástandi kon­unnar var birt í vís­inda­tíma­rit­inu Cell nýverið og er hún á meðal nokk­urra nýlegra rann­sókna þar sem stofn­frumur eru not­aðar til að með­höndla syk­ur­sýki. Sjúk­dóm­ur­inn hefur áhrif á um hálfan millj­arð manna um allan heim. Stærstur hluti hóps­ins er með syk­ur­sýki tvö. Fólk með þann sjúk­dóm fram­leiðir ekki nóg insúlín eða geta lík­am­ans til þess að nota horm­ónið er skert veru­lega. Talið er að allt að 10% Íslend­inga glími við syk­ur­sýki en algengi hennar hefur farið mjög vax­andi á síð­ustu árum eins og víðar í Evrópu.

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár