MAST kærir höfund skoðanagreinar á Vísi

MAST kærir grein­ar­höf­und sem titlar sig sem nátt­úru­unn­anda, land­eig­anda og bænda­dóttur fyrir að gefa í skyn að starfs­fólk MAST þæði mútur frá norskum auð­kýf­ingum.

MAST kærir höfund skoðanagreinar á Vísi
Fiskeldi Grein­ar­höf­und­ur­inn sakar starfs­menn MAST um að þiggja mútur frá norskum auð­kýf­ingum í tengslum við rekstr­ar­leyfi til fisk­eldis. Mynd: Aðalsteinn Kjartansson

For­stjóri Mat­væla­stofn­unar (MAST) og tveir starfs­menn stofn­un­ar­innar hafa kært skrif sem birt­ust í aðsendri grein á Vísi til lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra.

Í grein­inni, sem birt­ist á Vísi um miðjan júlí undir yfir­skrift­inni Af glyðru­gangi eft­ir­lits­stofn­ana, segir m.a. að starfs­fólk MAST skaki „sér í skrif­stofustólum svo skrjáfi í seðl­unum sem norskir auð­kýf­ingar hafi stungið í vasa þeirra um leið og þeir skrifi upp á rekstr­ar­leyfi til fisk­eldis í Ísa­fjarð­ar­djúpi þrátt fyrir mót­mæli Vega­gerð­ar­innar og Land­helg­is­gæsl­unnar“. Grein­ar­höf­und­ur­inn, Ester Hilm­ars­dóttir, titlar sig sem nátt­úru­unn­anda, land­eig­anda og bænda­dóttur búsetta í Þing­eyj­ar­sveit.  

Hrönn Ólína Jör­unds­dóttir, for­stjóri MAST, segir í sam­tali við RÚV að svo alvar­lega sé vegið að starfs­fólki að þörf sé á að grípa inn í. Í til­kynn­ingu frá MAST vegna kærunnar segir að stofn­unin vinni fag­lega að umsóknum um rekstr­ar­leyfi til fisk­eldis og veitir rekstr­ar­leyfi til fisk­eldis ef umsóknir upp­fylla skil­yrði laga og reglu­gerða, sam­kvæmt hlut­verki stofn­un­ar­innar. „For­stjóri stofn­un­ar­innar og starfs­menn sem komu að með­ferð og útgáfu rekstr­ar­leyf­is­ins telja að með fram­kominni aðdróttun sé alvar­lega vegið að heiðri og æru þeirra og því verði ekki kom­ist hjá öðru en að kæra skrifin til lög­reglu“, segir í til­kynn­ing­unni.

Ester hefur sömu­leiðis sent frá sér til­kynn­ingu vegna máls­ins þar sem hún hafnar því að nokkuð sak­næmt sé að finna í skrifum hennar. Þá hefur henni enn ekki borist form­leg kæra vegna máls­ins. 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Sem sagt kært til lögreglunnar I stað þess að svara gagnrýni því þeim svíður að fólk telji þá ekki gæta hagsmuna þjóðarinnar ? Hingað til hafa meint meiðyrði ekki verið forgangsmál né yfirleitt verið talin lögreglumál hélt ég.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
5
StjórnmálSamgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins

Óvissa um tekju­for­sendur sam­göngusátt­mál­ans

Óvissa virð­ist ríkja um marga lyk­il­þætti í fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir það áhyggju­efni að nið­ur­skurður á fjár­lögum muni auka lán­töku­þörf Betri sam­gangna á sama tíma. Hún segir ekki hægt að ráð­ast í fram­kvæmdir sem ekki hafi verið fjár­magn­aðar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár