„Ég er ekki hér til að passa peninga, ég er hér til að passa fólkið“

Þegar Karla Barra­laga Ocón byrj­aði að vinna á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Drop­laug­ar­stöðum um alda­mótin kunni hún litla sem enga íslensku. En á þessum tíma var nóg af starfs­fólki og hún gat lært tungu­málið af heim­il­is­fólk­inu. Nú eru gæða­stund­irnar mun færri, segir Karla.

„Ég er ekki hér til að passa peninga, ég er hér til að passa fólkið“
Kom fyrir rúmum 20 árum Karla hefur marga fjör­una sopið og á til að mynda þá ein­stöku reynslu að baki að eign­ast barn 47 ára gömul. Mynd: Golli

Fólk sem vinnur í umönnun í dag er bara þreytt. Þú mætir og vinnur og vinnur,“ segir Karla Barra­laga Ocón, starfs­maður á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Mörk, sem hefur starfað á íslenskum hjúkr­un­ar­heim­ilum í rúma tvo ára­tugi, eftir að hún flutt­ist hingað frá Hondúras.

Þetta var ekki alltaf svona, segir Karla og fleiri við­mæl­endur Heim­ild­ar­innar taka undir. Þegar hún kom hingað fyrst og tal­aði litla sem enga íslensku gat hún fengið að sitja með heim­il­is­fólk­inu og læra af því. 

„Þau sögðu mér frá því hvernig var í gamla daga, hvernig lífið var á Íslandi,“ segir Karla. 

Hún er á meðal fjöl­margra starfs­manna íslenskra hjúkr­un­ar­heim­ila erlendis frá, hóps sem hefur stækkað nokkuð á síð­ustu árum, ef litið er til talna­gagna frá stétt­ar­fé­lag­inu Eflingu, sem Karla situr í samn­inga­nefnd …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín R. Magnúsdóttir skrifaði
    Góð grein og sönn, því miður. Erlendir geta líka hjálpað sér svolítið sjálfir með það litla, sem þau hafa lært í íslensku, með því að tala saman á henni í vinnunni. En þau tala saman á sínu tungumáli eða á ensku. Ég veit þetta, því ég var á Landakoti og LSH 2023. Ég benti þeim á þetta að æfa ísl. sín á milli.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Innflytjendurnir í framlínunni

Að starfa með eldra fólki stækkar hjartað
VettvangurInnflytjendurnir í framlínunni

Að starfa með eldra fólki stækkar hjartað

Starfs­fólki hjúkr­un­ar­heim­ila af erlendum upp­runa hefur fjölgað veru­lega. Yfir helm­ingur starfs­fólk á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Skjóli er af erlendum upp­runa. Kanthi hefur starfað við umönnun í 37 ár og segir tím­ana erf­ið­ari en „í gamla daga“. Zlata Cogic kom til Íslands frá Bosníu fyrir sjö árum og upp­lifði í fyrsta sinn ham­ingju í starfi. Heim­ildin kíkti á dag­vakt á Skjóli.
„Hann vildi ekki fá þjónustu frá mér vegna þess að ég væri útlendingur“
ViðtalInnflytjendurnir í framlínunni

„Hann vildi ekki fá þjón­ustu frá mér vegna þess að ég væri útlend­ingur“

Wendill Viejo, hjúkr­un­ar­fræð­ingur á Land­spít­ala, segir að gera megi betur í því að taka á for­dómum gegn erlendu heil­brigð­is­starfs­fólki. Wendill fór í íslensku­nám um leið og hann kom til lands­ins og fann sjálfur fyrir meiri for­dómum þegar hann tal­aði minni íslensku. Hann starfar nú með fólki á erf­ið­ustu augna­blikum lífs­ins á gjör­gæslu­deild Land­spít­ala.
Allt annað líf eftir að fjölskyldan sameinaðist
ViðtalInnflytjendurnir í framlínunni

Allt annað líf eftir að fjöl­skyldan sam­ein­að­ist

Paola Bianka, skurð­hjúkr­un­ar­fræð­ingur á Land­spít­ala, þurfti að skilja son sinn eftir á Fil­ipps­eyjum fyrst um sinn til þess að kom­ast hingað og vinna í íslenska heil­brigð­is­kerf­inu. Tveimur árum síðar var fjöl­skyldan sam­einuð og Paola er hluti af sístækk­andi hópi fil­ip­p­eyskra hjúkr­un­ar­fræð­inga sem starfa víða í heil­brigð­is­kerf­inu og Land­spít­ali gæti ekki verið án.
„Konan með brosandi augun“ sem á ekki neitt þrátt fyrir þrotlausa vinnu
ViðtalInnflytjendurnir í framlínunni

„Konan með bros­andi augun“ sem á ekki neitt þrátt fyrir þrot­lausa vinnu

Þó Olga Leons­dótt­ir, starfs­mað­ur á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Skjóli, sé orð­in 67 ára göm­ul og hafi í tæp 20 ár séð um fólk við enda lífs­ins get­ur hún ekki hætt að vinna. Hún hefur ein­fald­lega ekki efni á því. Olga kom hing­að til lands úr sárri fá­tækt fall­inna fyrr­ver­andi Sov­ét­ríkja með dótt­ur­syni sín­um og seg­ir að út­lit sé fyr­ir að hún endi líf­ið eins og hún hóf það: Alls­laus. Hún er hluti af sís­tækk­andi hópi er­lendra starfs­manna á hjúkr­un­ar­heim­il­um lands­ins.
Erlendu heilbrigðisstarfsfólki fjölgar hratt: „Við getum alls ekki án þeirra verið“
ÚttektInnflytjendurnir í framlínunni

Erlendu heil­brigð­is­starfs­fólki fjölgar hratt: „Við getum alls ekki án þeirra verið“

Fólk sem kemur erlendis frá til þess að vinna í íslenska heil­brigð­is­kerf­inu hefur margt hvert þurft að færa fórnir til þess að kom­ast hingað. Tvær konur sem Heim­ildin ræddi við voru aðskildar frá börn­unum sínum um tíma á meðan þær komu undir sig fót­unum hér. Hópur erlendra heil­brigð­is­starfs­manna fer stækk­andi og heil­brigð­is­kerfið getur ekki án þeirra verið, að sögn sér­fræð­ings í mannauðs­málum.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
6
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár