Allt annað líf eftir að fjölskyldan sameinaðist

Paola Bianka, skurð­hjúkr­un­ar­fræð­ingur á Land­spít­ala, þurfti að skilja son sinn eftir á Fil­ipps­eyjum fyrst um sinn til þess að kom­ast hingað og vinna í íslenska heil­brigð­is­kerf­inu. Tveimur árum síðar var fjöl­skyldan sam­einuð og Paola er hluti af sístækk­andi hópi fil­ip­p­eyskra hjúkr­un­ar­fræð­inga sem starfa víða í heil­brigð­is­kerf­inu og Land­spít­ali gæti ekki verið án.

Allt annað líf eftir að fjölskyldan sameinaðist
Hjúkr­un­ar­fræð­ingur „Þú getur ekki lifað hérna á Íslandi og skilið hvernig fólkið er ef þú lærir ekki tungu­málið því tungu­málið er leiðin til að skilja og læra hvernig menn­ingin er og hvernig ykkar saga er,“ segir Paola sem var snögg að til­einka sér íslensk­una. Mynd: Golli

Fleiri en þrjú hund­ruð þús­und fil­ip­p­eyskir hjúkr­un­ar­fræð­ingar starfa utan heima­lands síns og eru Fil­ipps­eyjar það land sem flestir erlendir hjúkr­un­ar­fræð­ingar á Vest­ur­löndum koma frá. Ísland er engin und­an­tekn­ing en af sívax­andi fjölda erlendra heil­brigð­is­starfs­manna á Land­spít­ala eru 34 pró­sent frá Fil­ipps­eyjum. 

Skurð­hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn Paola Bianka er á meðal þeirra fil­ip­p­eysku hjúkr­un­ar­fræð­inga sem þar vinna en hún kom hingað ásamt eig­in­manni sínum, mennt­uðum kokki sem átti fil­ip­p­eyska for­eldra hér á landi, í leit að betra lífi fyrir sig og son þeirra árið 2014. Það voru sér­stak­lega launin sem heill­uðu, mun hærri hér á Íslandi en þau sem þekkj­ast í Fil­ipps­eyjum og þrátt fyrir hærra verð­lag hér end­ast launin mun betur. 

Hjónin komu hingað á náms­manna­visa og lærðu íslensku sem annað mál í Háskóla Íslands. Paola fór jafn­framt strax að …

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Innflytjendurnir í framlínunni

Að starfa með eldra fólki stækkar hjartað
VettvangurInnflytjendurnir í framlínunni

Að starfa með eldra fólki stækkar hjartað

Starfs­fólki hjúkr­un­ar­heim­ila af erlendum upp­runa hefur fjölgað veru­lega. Yfir helm­ingur starfs­fólk á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Skjóli er af erlendum upp­runa. Kanthi hefur starfað við umönnun í 37 ár og segir tím­ana erf­ið­ari en „í gamla daga“. Zlata Cogic kom til Íslands frá Bosníu fyrir sjö árum og upp­lifði í fyrsta sinn ham­ingju í starfi. Heim­ildin kíkti á dag­vakt á Skjóli.
„Hann vildi ekki fá þjónustu frá mér vegna þess að ég væri útlendingur“
ViðtalInnflytjendurnir í framlínunni

„Hann vildi ekki fá þjón­ustu frá mér vegna þess að ég væri útlend­ingur“

Wendill Viejo, hjúkr­un­ar­fræð­ingur á Land­spít­ala, segir að gera megi betur í því að taka á for­dómum gegn erlendu heil­brigð­is­starfs­fólki. Wendill fór í íslensku­nám um leið og hann kom til lands­ins og fann sjálfur fyrir meiri for­dómum þegar hann tal­aði minni íslensku. Hann starfar nú með fólki á erf­ið­ustu augna­blikum lífs­ins á gjör­gæslu­deild Land­spít­ala.
„Konan með brosandi augun“ sem á ekki neitt þrátt fyrir þrotlausa vinnu
ViðtalInnflytjendurnir í framlínunni

„Konan með bros­andi augun“ sem á ekki neitt þrátt fyrir þrot­lausa vinnu

Þó Olga Leons­dótt­ir, starfs­mað­ur á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Skjóli, sé orð­in 67 ára göm­ul og hafi í tæp 20 ár séð um fólk við enda lífs­ins get­ur hún ekki hætt að vinna. Hún hefur ein­fald­lega ekki efni á því. Olga kom hing­að til lands úr sárri fá­tækt fall­inna fyrr­ver­andi Sov­ét­ríkja með dótt­ur­syni sín­um og seg­ir að út­lit sé fyr­ir að hún endi líf­ið eins og hún hóf það: Alls­laus. Hún er hluti af sís­tækk­andi hópi er­lendra starfs­manna á hjúkr­un­ar­heim­il­um lands­ins.
Erlendu heilbrigðisstarfsfólki fjölgar hratt: „Við getum alls ekki án þeirra verið“
ÚttektInnflytjendurnir í framlínunni

Erlendu heil­brigð­is­starfs­fólki fjölgar hratt: „Við getum alls ekki án þeirra verið“

Fólk sem kemur erlendis frá til þess að vinna í íslenska heil­brigð­is­kerf­inu hefur margt hvert þurft að færa fórnir til þess að kom­ast hingað. Tvær konur sem Heim­ildin ræddi við voru aðskildar frá börn­unum sínum um tíma á meðan þær komu undir sig fót­unum hér. Hópur erlendra heil­brigð­is­starfs­manna fer stækk­andi og heil­brigð­is­kerfið getur ekki án þeirra verið, að sögn sér­fræð­ings í mannauðs­málum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár