„Konan með brosandi augun“ sem á ekki neitt þrátt fyrir þrotlausa vinnu
Hingað frá Lett­landi „Stundum átti ég bara eina kart­öflu, hálfa fyrir stelpuna og hálfa fyrir strák­inn,“ rifjar Olga upp. Mynd: Golli

„Konan með brosandi augun“ sem á ekki neitt þrátt fyrir þrotlausa vinnu

Þó Olga Leons­dótt­ir, starfs­mað­ur á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Skjóli, sé orð­in 67 ára göm­ul og hafi í tæp 20 ár séð um fólk við enda lífs­ins get­ur hún ekki hætt að vinna. Hún hefur ein­fald­lega ekki efni á því. Olga kom hing­að til lands úr sárri fá­tækt fall­inna fyrr­ver­andi Sov­ét­ríkja með dótt­ur­syni sín­um og seg­ir að út­lit sé fyr­ir að hún endi líf­ið eins og hún hóf það: Alls­laus. Hún er hluti af sís­tækk­andi hópi er­lendra starfs­manna á hjúkr­un­ar­heim­il­um lands­ins.

Olga Leons­dóttir, starfs­maður á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Skjóli, var nýbúin að ræða við tann­lækn­inn sinn þegar hún sett­ist niður með blaða­manni Heim­ild­ar­innar. Hún þurfti að fara í tals­verðar við­gerðir, enda hafði hún árum saman í heima­land­inu Lett­landi ekki getað farið til tann­læknis vegna fátæktar og á lágum launum í tvo ára­tugi á Íslandi átti hún jafn­framt ekki efni á tann­lækn­ingum. Samt hafði hún unnið í einni af grunn­stoðum sam­fé­lags­ins allan þennan tíma, við að sinna eldra fólki við enda gang­anna.

Olga er á meðal fjöl­margra erlendra starfs­manna íslenskra hjúkr­un­ar­heim­ila, hóps sem hefur stækkað nokkuð á síð­ustu árum, ef litið er til talna­gagna frá stétt­ar­fé­lag­inu Eflingu, sem Olga er stjórn­ar­kona hjá. Félags­fólk Eflingar sem starfar á hjúkr­un­ar­heim­ilum var 29 pró­sent erlent árið 2020 en það hlut­fall er nú 43 pró­sent. 

…

Kjósa
68
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (9)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MGÁ
    María Guðrúnar. Ágústsdóttir skrifaði
    Takk, Olga, fyrir að hugsa svona vel um fólkið þitt og okkar allra á Skjóli.
    2
  • Olga Leonsdóttir skrifaði
    Hæ.
    Ég heiti Olga Leonsdottir og ég skrifa till allra sem trúir mér ekki að mínn ellilífeyrir er 290.þús. Jú, þetta ekki alveg rétt. 1. júní 2024 var mínn ellilífeyrir 218,801 króna. Kannski , Íslendingar vita ekki að manneskja , sem býr á Íslandi í 20 ár fær bara 50 % af launauppbót frá TR. Og engum er sama hversu mikla skatta þú borgaðir fyrir þessi 20 ár. Þið getið leitað til TR. ,, Reiknivél lífeyrir 2024 ,, og reiknað. En fólk sem búið hefur á Íslandi í 40 ár alveg sama hvort vann eða ekki fær 100 % launauppbót frá TR . Og mínn ellilífeyrir 290 þús. kr þetta er ekki rugl en svona er Ísland í dag .
    Besta kveðja. Olga
    14
    • Svala Jónsdóttir skrifaði
      Hvað með viðbótargreiðslur til fólks með takmörkuð lífeyrisréttindi? Sbr. þetta:

      https://island.is/felagslegur-vidbotarstudningur
      2
    • Sigurður Einarsson skrifaði
      Hvað með lífeyrisgreiðslur frá Lettlandi? Og svo er heimilisuppbót ef þú býrð ein.
      0
  • ÓS
    Ólöf Sverrisdóttir skrifaði
    En hún hlýtur að eiga að fá launauppbót frá Tryggingastofnun. Það verða allir að ná lágmarkslaunum.. annað er rugl. Af hverju fær hún það ekki???
    -1
    • Sigurður Einarsson skrifaði
      TR miðar við búsetu á Íslandi frá 18 til 67. Svo minusar TR árafjölda við búsetu erlendis.
      0
  • Sveinn Ingólfsson skrifaði
    Hún hefði frekar átt að fara Danmerkur. Þar hefði hún haft það mikið betra. Ísland er ekki staðurinn fyrir þá fátæku en það er gott fyrir þá ríku. Og það sem meira er, það versnar með hverju árinu undir stjórn þeirra þriggja sjórnmálaflokka sem nú ráða. Fjármagnseigendur kaupa upp íbúðir og hækka stöðugt leiguna í skjóli stjórnvalda. Unga fólkið hefur ekki möguleika á að keppa við fjármagnseigendur um íbúðir. Meðal annars þess vegna minnkar fylgi stjórnarfokkanna mjög hratt og á eftir að minka mjög hratt áfram. Hrakfarir þeirra munu því verða miklar í næstu kosningum. Ég efast þó um að það taki mikið betra við. Því miður.
    8
  • HJ
    Helga Júlíusdóttir skrifaði
    Á hún ekki rétt á launauppbót frá tryggingastofnun ?
    0
    • Olga Leonsdóttir skrifaði
      Þessi upphæð ásamt með uppbót frá tryggingastofnun. Þeir sem hafa búið á Íslandi 20 ár fá 50 % uppbót frá trs.
      6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Innflytjendurnir í framlínunni

VettvangurInnflytjendurnir í framlínunni

Að starfa með eldra fólki stækkar hjartað

Starfs­fólki hjúkr­un­ar­heim­ila af erlendum upp­runa hefur fjölgað veru­lega. Yfir helm­ingur starfs­fólk á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Skjóli er af erlendum upp­runa. Kanthi hefur starfað við umönnun í 37 ár og segir tím­ana erf­ið­ari en „í gamla daga“. Zlata Cogic kom til Íslands frá Bosníu fyrir sjö árum og upp­lifði í fyrsta sinn ham­ingju í starfi. Heim­ildin kíkti á dag­vakt á Skjóli.
ViðtalInnflytjendurnir í framlínunni

„Hann vildi ekki fá þjón­ustu frá mér vegna þess að ég væri útlend­ingur“

Wendill Viejo, hjúkr­un­ar­fræð­ingur á Land­spít­ala, segir að gera megi betur í því að taka á for­dómum gegn erlendu heil­brigð­is­starfs­fólki. Wendill fór í íslensku­nám um leið og hann kom til lands­ins og fann sjálfur fyrir meiri for­dómum þegar hann tal­aði minni íslensku. Hann starfar nú með fólki á erf­ið­ustu augna­blikum lífs­ins á gjör­gæslu­deild Land­spít­ala.
ViðtalInnflytjendurnir í framlínunni

Allt annað líf eftir að fjöl­skyldan sam­ein­að­ist

Paola Bianka, skurð­hjúkr­un­ar­fræð­ingur á Land­spít­ala, þurfti að skilja son sinn eftir á Fil­ipps­eyjum fyrst um sinn til þess að kom­ast hingað og vinna í íslenska heil­brigð­is­kerf­inu. Tveimur árum síðar var fjöl­skyldan sam­einuð og Paola er hluti af sístækk­andi hópi fil­ip­p­eyskra hjúkr­un­ar­fræð­inga sem starfa víða í heil­brigð­is­kerf­inu og Land­spít­ali gæti ekki verið án.
ÚttektInnflytjendurnir í framlínunni

Erlendu heil­brigð­is­starfs­fólki fjölgar hratt: „Við getum alls ekki án þeirra verið“

Fólk sem kemur erlendis frá til þess að vinna í íslenska heil­brigð­is­kerf­inu hefur margt hvert þurft að færa fórnir til þess að kom­ast hingað. Tvær konur sem Heim­ildin ræddi við voru aðskildar frá börn­unum sínum um tíma á meðan þær komu undir sig fót­unum hér. Hópur erlendra heil­brigð­is­starfs­manna fer stækk­andi og heil­brigð­is­kerfið getur ekki án þeirra verið, að sögn sér­fræð­ings í mannauðs­málum.

Mest lesið undanfarið ár