Laun borgarfulltrúa of há eða lág?

Ekki eru allir á sama máli hvað laun borg­ar­full­trúa varðar. Oddviti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík telur að launin séu eðli­leg miðað við ábyrgð og vinnu­á­lag en odd­viti Sós­í­alista­flokks­ins segir að þau séu of há – sér­stak­lega þegar launin eru skoðuð í sam­hengi við laun þeirra sem starfa fyrir borg­ina í mik­il­vægum ábyrgð­ar­störfum.

Laun borgarfulltrúa of há eða lág?
Launin mis­jöfn Borg­ar­full­trúar, sem eru alls 23 tals­ins, fá tals­verðar greiðslur umfram grunn­laun. Mynd: Davíð Þór

Með­al­heild­ar­tekjur odd­vita stjórn­mála­flokk­anna í Reykja­vík voru 22,9 millj­ónir árið 2023 þegar fjár­magnstekjur eru reikn­aðar með. Með­al­tekjur þeirra á mán­uði voru 1,7 millj­ónir. Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var með hæstu heild­ar­tekj­urnar, eða 37,5 millj­ónir. Hún sker sig tölu­vert úr þar sem fjár­magnstekjur hennar voru 15 millj­ónir króna á síð­asta ári. 

Hildur segir í sam­tali við Heim­ild­ina að þessar háu tekjur hennar skýrist af því að hún var sam­sköttuð með eig­in­manni sínum, Jóni Skafta­syni. „Hann er í sjálf­stæðum rekstri og þetta er aðal­lega arður sem hann greiðir út úr þeim rekstri.“ 

Varðandi laun borg­ar­full­trúa segir Hildur að starf þeirra sé vel borgað en bendir á að launastrúkt­úr­inn byggi á vinnu­á­lagi. „Þannig að launin eru ekki þau sömu fyrir alla. Nú er ég til að mynda odd­viti stærsta flokks­ins í borg­ar­stjórn og því fylgja ákveðin auka­störf sem auka við launin. Þannig að launin tengj­ast vinnu­á­lagi og …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár