Blái blett­ur­inn Á mynd­inni má sjá um það bil hvar Blái blett­ur­inn yrði miðað við sviðs­mynd 2. Mynd: Shutterstock / Jón Ingi

Blái bletturinn: „Alvarleg áhrif“ á íslenskt loftslag jafnvel strax næsta áratug

Breyt­ingar á haf­straumum vegna hlýn­unar jarðar gætu valdið öfga­fullu veðri strax á fjórða ára­tug ald­ar­innar að mati hafeðl­is­fræð­ings. Það er þó ekki versta sviðs­myndin en hún sýnir allt að 10 gráðu kólnun á Íslandi að vetr­ar­lagi.

Nið­ur­brot haf­strauma í Norður-Atl­ants­hafi gæti leitt til rót­tækra breyt­inga á lofts­lagi og veðri á Íslandi strax upp úr árinu 2030. Fari hlut­irnir á versta veg og stór kerfi haf­strauma lið­ast í sundur mun hita­stig á land­inu lækka um allt að 10 gráður á vet­urna. Ísland er við „Bláa blett­inn“ – eina svæði jarðar þar sem lofts­lag kólnar í stað þess að hitna.

Þetta segir Stefan Rahms­torf, þýskur haf- og lofts­lags­fræð­ingur. „Per­sónu­lega þá tel ég að áhættan á þessum breyt­ingum í hafi sé svo alvar­leg, sér­stak­lega fyrir Íslend­inga og hin Norð­ur­löndin, að rík­is­stjórn Íslands ætti umsvifa­laust að grípa til aðgerða ásamt rík­is­stjórnum hinna Norð­ur­land­anna,“ segir hann í við­tali við Heim­ild­ina.

„Rík­is­stjórn Íslands ætti umsvifa­laust að grípa til aðgerða“

Rahms­torf er pró­fessor í hafeðl­is­fræði við Háskól­ann í Potsdam í Þýska­landi og var einn af höf­undum lofts­lags­skýrslu IPCC, lofts­lags­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem hlaut frið­ar­verð­laun Nóbels árið 2007. Hann hefur lengi rann­sakað haf­strauma og …

Kjósa
109
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HÞÞ
    Hjalti Þór Þórsson skrifaði
    Af hverju finnst mér eins og það eina sem verði gert við þessa þekkingu er markaðsherferð til að laða að ríka ferðamenn til að "kæla sig" eftir hitabylgjur og skógarelda?
    10
    • RKS
      Ragnheiður K. Steindórsdóttir skrifaði
      Er það ekki undir okkur komið? Við þurfum að vekja ráðamenn og fá þá til að horfast í augu við staðreyndir!
      4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kólnun Íslands

Auknar líkur á hruni áhrifamikils hafstraums í Atlantshafi
FréttirKólnun Íslands

Auknar líkur á hruni áhrifa­mik­ils haf­straums í Atl­ants­hafi

Hrun velti­hringrásar Atl­ants­hafs­ins, AMOC-haf­straums­ins, telst ekki lengur „ólík­legur atburður“. Þetta kemur fram í nýrri rann­sókn. Stefan Rahms­torf haf- og lofts­lags­sér­fræð­ingur og einn rann­sak­anda segir nið­ur­stöð­urnar „slá­andi.“ Í sam­tali við Heim­ild­ina í fyrra sagði Rahms­torf að nið­ur­brot AMOC yrði „kata­st­rófa fyrir Ísland og önnur Norð­ur­lönd“ og hvatti íslensk stjórn­völd til aðgerða.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár