Pólitískur hvítþvottur íþrótta til rannsóknar í HÍ

Ný rann­sókn við Háskóla Íslands skoðar tengsl stjórn­mála og stór­móta í íþróttum og hvort ein­ræð­is­ríkum tak­ist að „íþrótta­þvo“ sig með sjón­ar­spil­inu.

Pólitískur hvítþvottur íþrótta til rannsóknar í HÍ
HM í knatt­spyrnu Vladimir Putin afhenti bolt­ann til Katar fyrir HM árið 2022. Mynd: Russian Presidential Press and Information Office

Stórmót í íþróttum, allt frá Ólymp­íu­leikum til alþjóð­legra móta í knatt­spyrnu, hafa reglu­lega verið haldin í þjóð­ríkjum þar sem mann­rétt­indi eiga undir högg að sæta. Ný rann­sókn við hug­vís­inda­svið Háskóla Íslands veltir því upp hvort með við­burðum eins og HM í knatt­spyrnu í Rúss­landi 2018 og í Katar 2022 tak­ist heima­þjóð­unum að hvít­þvo ólystuga póli­tík sína.

Erum við áhorf­endur þá sam­sek með ódæð­unum? „Eða eru slíkir atburðir í raun og veru að hvetja til breyt­inga til hins betra og að knýja á um mik­il­væg verk­efni eftir diplómat­ískum leiðum í gegnum íþrótt­irnar?“ spyr Vitaly Kazakov, nýdoktor við Háskóla Íslands, sem vinnur að rann­sókn­inni sem er styrkt af RANNÍS, að því fram kemur á vef HÍ.

EM 2024Evr­ópu­mótið í knatt­spyrnu stendur nú yfir í Þýska­landi.

Í rann­sókn­inni er minni almenn­ings um mótin metið í sam­hengi við umhverfi stjórn­mála og fjöl­miðla á þeim tíma. Gjarnan er talað um hvít­þvott, eða jafn­vel „íþrótta­þvott“, til­raunir til að breiða yfir mis­tök eða mis­ferli eða hreinsun á áburði um skað­lega eða sak­næma starfs­hætti. „Ég er að rann­saka póli­tíska þýð­ingu stórra íþrótta­við­burða, eins og Evrópu- og heims­meist­ara­keppn­innar í fót­bolta og Ólymp­íu­leik­anna,“ segir Vitaly. „Í því sam­hengi er ég með til skoð­unar við­burði sem eru skipu­lagðir af lýð­ræð­is­ríkjum and­spænis ein­ræð­is­ríkum.“

Rannsakaði fæðingarland sitt

Vitaly er fæddur í Rúss­landi, en alinn upp í Kanada, og fyrstu rann­sóknir hans á þessu sviði snéru að notkun Rússa á Ólymp­íu­leik­unum í Sochi árið 2014 og HM í fót­bolta fjórum árum síðar. Rann­sókn­irnar sýndu að mótin lifðu sjálf á eigin for­sendum. „Mótin hafa þannig í raun var­an­lega þýð­ingu fyrir hvernig almenn­ingur túlkar stjórn­mála­heim­inn í kringum sig. Mig grunar að þetta muni einnig verða raunin í nýju rann­sókn­inni,“ segir hann.

„Mótin hafa þannig í raun var­an­lega þýð­ingu fyrir hvernig almenn­ingur túlkar stjórn­mála­heim­inn í kringum sig“

Íþróttir og stjórn­mál vefj­ast saman á marg­vís­legan hátt, segir Vitaly. „Þegar Rússar réð­ust inn í Úkraínu árið 2022 sá maður strax ákall í færslum frétta­veita á borð við BBC og Guardian í Bret­landi um að rúss­neskum íþrótta­liðum yrði vísað úr alþjóð­legum mótum og að úrslita­leikur Meist­ara­deild­ar­innar í knatt­spyrnu, sem þá var áform­aður í Pét­urs­borg, yrði fluttur annað.“

Ísland og Brexit

Vitaly er þessa dag­ana að skoða sam­spil Íslands, Englands og Rúss­lands á Evr­ópu­mót­inu í knatt­spyrnu árið 2016, atburða­rás­ina í Rúss­landi árið 2018 og Evr­ópu­mótið 2020. „Þarna skoða ég skörun þess­ara miklu íþrótta­við­urða við Brexit, stríðið milli Rússa og Úkra­ínu­manna og svo COVID-19-heims­far­ald­ur­inn. Ég er spenntur að sjá hvernig ólíkt umhverfi stjórn­mála og fjöl­miðla, ásamt reynslu frá þessum keppnum, mótar skiln­ing almenn­ings á íþrótta­við­burðum ann­ars vegar og á póli­tískum áskor­unum eða kreppum hins vegar,“ segir Vitaly.

„Þetta vil ég gera til að hjálpa sam­fé­lögum að draga lær­dóm af fyrri við­burðum á sviði íþrótta“

Þá er hann með til rann­sóknar hvort svo­kallað „mjúkt vald“, diplómat­ískar leiðir þjóða til að ná árangri, hafi áhrif á þessum íþrótta­mótum þannig að íþrótta­menn­ingin örvi sam­fé­lags­legar breyt­ingar. „Þetta vil ég gera til að hjálpa sam­fé­lögum að draga lær­dóm af fyrri við­burðum á sviði íþrótta.“

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár