„Frjáls, frjáls Gaza“ berst inn í þingsalinn nokkrum dögum eftir piparúðann

Há hróp og köll heyrð­ust frá mót­mæl­endum alla leið inn í þing­sal Alþingis við upp­haf þing­fundar í dag: „Frjáls, frjáls Gaza,“ köll­uðu mót­mæl­endur. Þingkona Pírata spurði dóms­mála­ráð­herra út í fram­gang lög­reglu gegn mót­mæl­end­unum þar sem piparúða var beitt í síð­ustu viku.

Ásjöunda tug mót­mæl­enda eru nú staddir fyrir utan Alþing­is­húsið. Félagið Ísland - Palest­ína stendur fyrir mót­mæl­unum og krefj­ast þau þess að íslenska ríkið setji við­skipta­þving­anir á Ísrael og slíti stjórn­ar­sam­bandi við ríkið vegna hern­aðar Ísraels á Gazasvæðinu. 

Hróp og köll frá hópnum heyrð­ust skýrt alla leið inn í þing­sal Alþingis við upp­haf þing­fundar klukkan þrjú í dag. Hópurinn kall­aði:  „Frjáls, frjáls Gaza, leyfið Gaza að lifa,“  og upp á ensk­una „Free, free Rafah, ceasefire now.“

Á blöðum sem nú er deilt út til mót­mæl­enda er þess kraf­ist, auk kröfu um við­skipta­þving­anir og slit á stjórn­ar­sam­starfi, að Ísland styðji mál­sókn Suður-Afríku á hendur Ísrael við Alþjóða­dóm­stól­inn og þess að utan­rík­is­ráð­herra Íslands hafi frum­kvæði að sam­tali við Norð­ur­löndin, Írland og Spán um sam­hæf­ingu aðgerða.

Nokkuð hefur borið á mót­mælum gegn hern­að­ar­að­gerðum Ísraela hér á landi síðan stríð hófst í byrjun októ­ber eftir inn­rás Ham­asliða í Ísrael þann sjö­unda októ­ber síð­ast­lið­inn þegar tæp­lega 1.200 Ísraelar týndu lífi og um 250 voru teknir sem gíslar. Ísra­els­her brást við með áður óséðu offorsi og hefur þegar drepið að minnsta kosti 36 þús­und Palest­ínu­menn, mest börn og konur. 

Guðrún og Þórhildur tókust á

Aukin harka hljóp í við­brögð við mót­mælum gegn árásum Ísra­els­hers í síð­ustu viku þegar lög­reglu­menn úðuðu piparúða á mót­mæl­endur sem mót­mæltu fyrir utan rík­is­stjórn­ar­fund. Þeir höfðu truflað för ráð­herra­bíl­anna. 

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, spurði Guðrúnu Haf­steins­dóttur dóms­mála­ráð­herra um atvikið í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum nú síð­degis. Hún vitn­aði í ummæli Guðrúnar um það: 

„Ísland er lýð­ræð­is­ríki og í lýð­ræð­is­ríkjum virðum við rétt fólks til að tjá skoð­anir sínar með frið­sam­legum hætti en um leið og farið er gegn skýrum fyr­ir­mælum lög­reglu eru mót­mæli ekki lengur frið­sam­leg.“

Þór­hildur kall­aði þetta afskræm­ingu á rétti borg­ar­anna til frið­sam­legra mót­mæla. Guðrún svar­aði því til að mót­mæl­end­urnir hefðu hindrað för ráð­herra og neitað að hlýða fyr­ir­mælum lög­reglu. Hún sagð­ist fagna því að lög­reglan hafi haft frum­kvæði að því að vísa atvik­inu til nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu. Þá svar­aði Þór­hildur:

„Ráðherra dóms­mála á Íslandi, æðsti yfir­maður lög­gæsl­unnar á Íslandi, getur ekki leyft sér að hafa ein­hverja skoðun á því hvernig lýð­ræðið virkar og hvernig réttur fólks til að mót­mæla virkar.“

Fréttin verður upp­færð

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár