Myndband: Lögregla sprautaði piparúða og hrinti mótmælendum

Lögregla úðaði piparúða yfir mót­mæl­endur fyrir utan rík­is­stjórn­ar­fund í morgun. Mót­mæl­andi segir ráð­herra ekki hafa verið í neinni hættu.

Lög­reglan spraut­aði piparúða yfir þó nokkra mót­mæl­endur í Skugga­sundi þar sem rík­is­stjórn­ar­fundur var hald­inn í morgun.  Mótmælin voru á vegum sam­tak­anna Ísland-Palestína. Talsverð harka var í aðgerðum lög­reglu líkt og sjá má á með­fylgj­andi mynd­bandi.

Sjón­ar­vottur sem ekki vill láta nafns síns getið segir að mót­mæl­endur hafi kallað og reynt að hindra för ráð­herra­bíl­ana með því að færa sig ekki burt. Þá hefði lög­regla tekið að hrinda mót­mæl­end­unum og sprauta piparúða. Óein­kenn­is­klædd lög­regla hefði dregið einn mót­mæl­and­ann eftir jörð­inni. 

Við­kom­andi segir að allir lög­reglu­þjón­arnir hefðu verið með pipar­úð­ann til­bú­inn áður en nokkur ástæða var til að nota hann. Einn þeirra hefði tekið upp kylfu og haldið henni uppi lengi.

Voru ráð­herr­arnir í nokk­urri hættu?

„Alls ekki. Það snerti eng­inn bíl­inn einu sinni.“

Samkvæmt Vísi eru tíu mót­mæl­endur illa haldnir og einn lög­reglu­maður slas­aður eftir að hafa orðið fyrir ráð­herra­bíl. Salvör Gullbrá Þór­ar­ins­dóttir segir í við­tali við Vísi að um 40 mót­mæl­endur hefðu fengið piparúða yfir sig. 

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Arfleifð forsetaframboðs Katrínar Jakobsdóttir í boði Sjálfstæðisflokksins !
    -1
  • APA
    Axel Pétur Axelsson skrifaði
    sprautaði piparúða = eiturvopnaárás . . .
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár