„Þetta er sama fólkið — með sömu stefnu — í nýjum stólum“

Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, gagn­rýndi nýja rík­is­stjórn fyrir stefnu­leysi and­spænis flóknum, aðkallandi verk­efnum. Í ræðu sinni á Alþingi í dag sagði hún að engar meiri­háttar stefnu­breyt­ingar hafi verið gerðar við end­ur­skipu­lagn­ingu á nýrri rík­is­stjórnn eftir að Katrín Jak­obs­dóttir sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra.

„Þetta er sama fólkið — með sömu stefnu — í nýjum stólum“
Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, , segir nýja rík­is­stjórn vera aðeins nýja að nafn­inu til og rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir muni þurfa svara fyrir stefnu­leysi sitt í kom­andi kosn­ingum. Mynd: Golli

Fyrsti þing­fundur nýrrar rík­is­stjórnar undir for­sæti Bjarna Bene­dikts­sonar fór fram í dag. Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar gagn­rýndu end­ur­nýjað stjórn­ar­sam­starf flokk­anna þriggja fyrir stefnu- og getu­leysi til þess að beita sér fyrir í mik­il­vægum mála­flokkum sem talin eru áríð­andi. 

Í kjöl­far yfir­lýs­ingar nýs for­sæt­is­ráð­herra og and­svara tóku við sér­stakar umræður þar sem þing­mönnum stjórn­ar­and­stöð­unnar gafst tæki­færi til að tjá sig um nýju rík­is­stjórn­ina. 

Fyrst til þess að taka til máls var Kristrún Frosta­dóttir sem sagði rík­is­stjórn­ina ekki geta orðið við kröfum þjóð­ar­innar um árangur án þess að breyta um stefnu. Ekki sé nóg að stokka upp ráð­herra­stólum.  

„Þetta er sama fólkið — með sömu stefnu — í nýjum stólum.“

Frá­far­andi rík­is­stjórn hafi skilið lítið eftir sig og náð litlum árangri á sviði efna­hags­mála, sam­göngu­mála, útlend­inga­mála og fleira. Taldi hún að stjórn­ar­flokk­arnir hefðu átt að nýta tæki­færið við end­ur­nýjun sam­starfs­ins til þess að boða skýra stefnu­breyt­ingu. Það …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár