1,5 milljarðar í vetrarþjónustu í fyrra

Kostn­aður við vetr­ar­þjón­ustu í Reykja­vík var nærri 1.300 millj­ónum árið 2022 en fór yfir 1.500 millj­ónir í fyrra. Snjó­þyngsli í borg­inni eru að aukast.

1,5 milljarðar í vetrarþjónustu í fyrra
Meiri snjór Snjódýpt mælist sífellt meiri í Reykja­vík þótt enn komi snjó­létt ár. Mynd: Davíð Þór

Svo virð­ist sem dögum þar sem snjó­dýpt mælist yfir 10 cm í Reykja­vík hafi farið fjölg­andi síð­asta ára­tug­inn þótt á því séu und­an­tekn­ingar. Þá virð­ast til­vik þar sem snjó­dýpt mælist yfir 20 cm einnig hafa farið vax­andi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í minn­is­blaði sem lagt var fyrir umhverfis- og skipu­lags­ráð Reykja­víkur í vik­unni. 

Síðasti vetur skar sig úr hvað varðar mikla snjó­dýpt og var sá vetur almennt erf­iður. Kvört­unum yfir þjón­ustu borg­ar­innar rigndi inn og var ákveðið að bæta úr. „Með auknu þjón­ustu­stigi fylgir alla jafna auk­inn kostn­aður og hefur kostn­aður í vetr­ar­þjón­ustu Reykja­vík­ur­borgar aldrei verið hærri en síð­ustu tvö ár,“ segir í minn­is­blað­inu. Vaxandi kostn­aður helst einnig í hendur við stærð gatna- og stíga­kerfis. Sé horft aftur til árs­ins 2014 þá hefur til dæmis hjóla­stíga­kerfi borg­ar­innar lengst um 50%. 

Raun­kostn­aður við vetr­ar­þjón­ustu í Reykja­vík á árunum 2011 til 2021 hefur verið á bil­inu 700–1.000 millj­ónir en síð­ustu tvö ár hafa skorið sig úr, þar sem kostn­aður hefur verið umtals­vert hærri – árið 2022 var kostn­aður nærri 1.300 millj­ónir og á síð­asta ári fór kostn­að­ur­inn yfir 1.500 millj­ónir.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár