Safna páskaeggjum fyrir fátækar fjölskyldur

Formaður og vara­for­maður Hjálp­ar­kokka þekkja það sjálfar af eigin raun að lifa við fátækt og hvað það getur verið erfitt að biðja um aðstoð. Félagið stendur nú fyrir söfnun páska­eggja fyrir fátækar fjöl­skyldur. „Við þekkjum það að for­eldrar sem að búa í fátækt hafa ekki alltaf efni á því að gefa börn­unum sínum páska­egg.“

Safna páskaeggjum fyrir fátækar fjölskyldur
Hildur Odds­dóttir og Birna Kristín Sig­ur­jóns­dóttir þekkja af eigin raun fát­tækt og hversu erfitt það getur verið að leita aðstoðar. Mynd: Golli

„Ég var bara rosa brotin,“ sagði Birna Kristín Sig­ur­jóns­dóttir, vara­for­maður Hjálp­ar­kokka, um eitt af fyrstu skipt­unum sem hún leit­aði til Hjálp­ar­kokka eftir aðstoð. Hún fór ásamt dóttur sinni að sækja páska­egg. „Þegar þær komu var dóttir hennar rosa­lega feimin,“ sagði Hildur Odds­dóttir, for­maður Hjálp­ar­kokka. Hildur fór með dóttur Birnu að borði hlaðið páska­eggjum. „Ég spurði hana „hvernig egg vilt þú?“ Það tók smá tíma þangað til að hún valdi sér egg með bleikum unga.“

Hjálp­ar­kokkar var stofnað 2016 af Hildi. Hún rakst á umræðu á Facebook um skógjafir. „Ég hugs­aði sjálf, þar sem ég hef verið í þess­ari stöðu í mörg ár og veit hvað það er erfitt að kaupa bara fyrir eitt barn, hvað þá fjögur börn.“ Skógjafir eru 13 tals­ins á hvert barn og því getur reynst erfitt fyrir for­eldra í fátækt að hafa efni á 13 skógjöfum fyrir hvert barn í stórum fjöl­skyldum. Hildur er ein­stæð móðir og öryrki.

Verk­efnið hefur stækkað og árið 2020 urðu Hjálp­ar­kokkar að form­legu félagi. Eitt árið fékk Hildur gef­inn kassa af páska­eggjum þannig þá fékk hún þá hug­mynd að safna einnig páska­eggjum. „Við þekkjum það að for­eldrar sem að búa í fátækt hafa ekki alltaf efni á því að gefa börn­unum sínum páska­egg.“

Sögðu þær Hildur og Birna að það að vinna í félag­inu væri þeirra leið til að gefa til baka.

Taka á móti fólki í heima­húsiÍ hlý­legri íbúð í Breið­holt­inu skapa þær í Hjálp­ar­kokkum góðan anda. Lýsa þær því hvernig það léttir á taugum þeirra sem leita til þeirra að mæta og finna fyrir hlýju við­móti.

Þekkja þetta af eigin raun

Birna er ein­stæð móðir og öryrki „þannig ég hef þurft að leita aðstoðar hjá Mæðra­styrks­nefnd og Kirkj­unni og svo­leiðis. Ég hafði heyrt af Hjálp­ar­kokkum en einmitt var ekki búin að kynna mér það almenni­lega fyrr en sam­eig­in­leg vin­kona okkar benti mér á, spurði bara „þarftu ekki páska­egg fyrir stelp­urnar?““

„Það er svo oft þannig að við þorum ekki að biðja um ein­hvern óþarfa. Ég til dæmis hef alltaf verið mjög treg við að leita aðstoðar Mæðra­styrks­nefndar nema fyrir jólin.“ Birna upp­lifði að hún vildi ekki vera að taka af öðrum. „Þetta er svo ein­kenn­andi fyrir þá sem eru í fátækt.“

Birna sagði það ger­ast oft að þær þurfi að bjóða fólki aðstoð­ina „því þau eiga erfitt með að biðja um hana sjálf.“ Hjálp­ar­kokkar leggja ríka áherslu á að mæta fólki eins og það er og bera virð­ingu fyrir fólki. „Maður veit það sjálfur, því núna er ég búin að glíma við fátækt mjög lengi og ólst upp við þetta,“ sagði Hildur. „Við erum að mæta á hjálp­ar­stofn­anir og það var þetta kalda við­koma.“

Stoltar af þeim sem leita til Hjálparkokka

„Oft sér maður að þegar fólk er að koma til okkar að þá á það auð­velt með að koma aftur. Við erum rosa­lega stoltar af þeim sem koma til okkar og biðja um hjálp. Við vitum að það er ótrú­lega erfitt,“ sagði Birna.

„Maður sér svo vel þegar fólk er að koma í fyrsta skiptið. Þau eru alveg geð­veikt stíf. Margir hafa verið út í bíl grát­andi áður en þau gátu peppað sig í að koma inn og fá aðstoð­ina. Svo bara að sjá hvernig það slaknar á þeim þegar þau koma inn, bara svona „já okey þetta er ekki eins slæmt og ég bjóst við.“ Við höfum fengið rosa­lega erf­iðar sögur frá fólki sem hefur þurft að leita sér ein­hvers staðar ann­ars staðar aðstoðar og hefur fengið skít­kast og leið­indi á mörgum stöðum. Þannig þetta er rosa­lega erfitt fyrir fólk að biðja um þessa hjálp.“

Söfnunin þeirra fer fram í heima­húsi. Þannig tekst þeim að skapa hlýtt við­mót og góðan anda fyrir þá sem leita til Hjálp­ar­kokka. „Þú getur lesið ein­hverjar töl­fræði­tölur um fátækt og reynt að kynna þér málið og svo­leiðis en ef maður hefur ekki verið í stöð­unni sjálfur þá þekkir maður til­finn­ing­una ekki alveg á bak við það. Ég held að það sé alveg eitt­hvað sem þiggj­endur finna alveg.“

Söfnunin

„Starfs­fólk Land­spít­al­ans hefur verið dug­legt að gefa páska­eggin sín,“ sagði Hildur. Óska­list­inn leng­ist á hverjum degi.

Páska­eggja­söfn­unin nær yfir allt land. „Þörfin er út um allt land, ekki bara á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.“ Inn á Facebook hóp Hjálp­ar­kokka má finna lista yfir þau páska­egg sem þeim vantar í söfn­un­ina en hann leng­ist á hverjum degi. Hjálp­ar­kokkar taka einnig við hvaða eggjum sem er og frjálsum fram­lögum.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár