Tæpur helmingur landsmanna andsnúinn þátttöku í Eurovision

Samkvæmt nýlegri könnun sem mark­aðs­rann­sókn­ar­fyr­ir­tækið Prósent fram­kvæmdi eru 46 pró­sent lands­manna and­vígir þátt­töku Íslands í Eurovision í ár. 31 pró­sent svar­enda sögð­ust hlynnt þátt­töku Íslands með lagi Heru Bjarkar. Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar ríma ekki við úrslitin úr ein­vígi Söngvakeppn­innar.

Tæpur helmingur landsmanna andsnúinn þátttöku í Eurovision
Samkvæmt mæl­ingum Prósent eru 46 pró­sent lands­manna and­vígir því að senda Heru Björk út til þess að taka þátt í Eurovision í Malmö Mynd: RÚV

Samkvæmt nýlegri við­horfskönnun sem mark­aðs­rann­sókn­ar­fyr­ir­tækið Prósent lét fram­kvæma nýlega eru 46 pró­sent lands­manna mót­fallin því Ísland taki þátt í Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva í ár. 

Afstaða til þátt­töku Íslands í Eurovision í ár

Könnunin var fram­kvæmd dag­ana 8. til 14. mars og voru lands­menn  meðal ann­ars spurðir út í við­horf sín gagn­vart sig­ur­lagi Söngvakeppn­innar, Scared of Heights í flutn­ingi Heru Bjarkar og hvort þetta hefði verið lagið sem lands­menn hefðu viljað sjá sigra ein­vígið í úrslitum Söngvakeppn­innar. Þá var einnig lagt mat á þátt­töku í kosn­ingum á úrslita­kvöld­inu. 

Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar er um margt for­vitni­legar og virð­ast ekki vera í takt við úrslit Söngvakeppn­innar. 42 pró­sent svar­enda hefðu viljað að Wild West með Bashar Murad hefði borið sigur úr býtum í keppn­inni, en 38 pró­sent studdu Heru Björk. Það vekur einnig athygli hve stór hluti svar­enda sögð­ust vilja að hvor­ugt lagið hefði unnið, heil 21 pró­sent.  

Samkvæmt þess­ari könnun vildu fleiri að Bashar færi með sigur

Aldur, kyn og fjárhagsstaða lituðu kosningarnar

Í könn­un­inni var einnig skráður niður aldur, kyn og fjár­hags­staða svar­enda. Þegar svör þátt­tak­enda eru skoðuð út frá þessum þáttum má glöggt sjá skoð­ana­mun milli kyn­slóða. Flestir á ald­urs­bil­inu 18 til 24 ára hefðu viljað að Bashar hefði unnið, eða um 73 pró­sent. Hins vegar vildu aðeins 15 pró­sent svar­enda eldri en 65 ára að Bashar bæri sigur úr býtum.  

Viðhorf þátt­tak­enda eftir aldri

Mikill meiri­hluti svar­enda sögð­ust ekki hafa tekið þátt í kosn­ingum í úrslitum Söngvakeppn­innar, en sam­kvæmt könn­un­inni sögð­ust 23 pró­sent svar­enda hafa kosið á úrslita­kvöld­inu. 

Þegar kosn­inga­þátt­taka er skoðuð út frá aldri og fjár­hags­stöðu sést einnig skýr munur. Aðeins 11 pró­sent svar­enda á ald­urs­bil­inu 18 til 24 ára tóku þátt í kosn­ing­unum. Til sam­an­burðar tók fjórð­ungur þeirra sem eru 65 ára og eldri þátt í kosn­ing­unum. Hæsta kosn­inga­hlut­fallið var meðal ein­stak­linga á milli 35 til 44 ára.

Þá var líka mark­tækur munur í kosn­inga­þátt­töku eftir tekju­bili. 15 pró­sent þeirra sem voru með minna en 400 þús­und krónur í mán­að­ar­tekjur kusu á umræddu kvöldi. Það hlut­fall var helm­ingi hærra á meðal ein­stak­linga sem eru með milljón krónur eða hærra í mán­að­ar­laun. 

Þeir sem eru á hærra tekju­bili voru lík­legri til þess að greiða atkvæði

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár