Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra leggur til að framlag ríkisins til listamannalaun hækki verulega á næstu árum, um 124 milljónir á næsta ári og 700 milljónir króna árið 2028.
Þetta kemur fram í frumvarpsdrögum hennar sem nú eru í samráðsgátt.
Frumvarpið miðar að því að „stofna þrjá nýja launasjóði og fjölga þeim mánaðarlegu starfslaunum sem koma til úthlutunar“. Það er lagt fram í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um að „styrkja faglega starfslauna- og verkefnasjóði listamanna með sérstakri áherslu á að starfslaunin tryggi betur afkomu þeirra sem starfa í listum eða við skapandi greinar.“
Í skýringu með frumvarpinu kemur fram að fjöldi starfslauna hafi haldist óbreyttur síðan gildandi lög tóku gildi árið 2009.
„Starfslaunamánuðum verður fjölgað úr 1.600 í 2.850 á tímabilinu og þremur nýjum sjóðum bætt við kerfið; Launasjóði kvikmyndahöfunda, Vexti sjóði 35 ára og yngri og Vegsemd sjóði listamanna 67 ára og eldri.“
Breytingarnar verða innleiddar í skrefum á árunum 2025-2028 og er ráðgert að kostnaður verði eftirfarandi:
2025: 124 millj. kr.
2026: 280 millj. kr.
2027: 490 millj. kr.
2028: 700 millj. kr.
Athugasemdir (2)