Flestir ákváðu að skilja í nóvember

1.457 umsóknir um skilnað bár­ust sýslu­mönnum um hjóna­skilnað árið 2023. Lang flestir skiln­aðir urðuí nóv­em­ber, eða 180 sam­tals.

Flestir ákváðu að skilja í nóvember

„Samkvæmt upp­lýs­ingum frá sýslu­manna­ráði bár­ust sýslu­mönnum. 1457 umsóknir um hjóna­skiln­aði árið 2023.” Þetta kemur fram í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Andrésar Inga Jónssyni, þing­manni Pírata, um hjóna­skilnað. Í skýrsl­unni eru mán­uð­urnir sundur lið­aðir og þar gert ljóst hvort um hafi verið að ræða lög­skilnað eða skiln­aður að borði og sæng. 

Í töfl­unni má sjá að flestar umsóknir um skilnað bár­ust í nóv­em­ber á síð­asta ári eða 180 tals­ins. Þar eftir bár­ust 145 umsóknir um skilnað í ágúst. Fæstar umsóknir um skilnað bár­ust í júlí eða 88 umsóknir sam­tals. 

Ný grein bætt­ist við í lögum um hjóna­skilnað á Íslandi á síð­asta ári og tók hún gildi í júlí. Hjón sem eru sam­mála um að leita lög­skiln­aðar geta sótt um hann án milli­göngu lög­manns. Þurfa hjónin að eiga engar sam­eig­in­legar eignir né börn undir 18 ára aldri „eða hjón hafa náð sam­komu­lagi um skipan for­sjár fyrir börnum, um fram­færslu­eyri og aðra skiln­að­ar­skil­mála.” 

Þróun giftingartíðni Íslendinga

Lang flestar hjóna­vígslur á hverja 1.000 íbúa voru árið 1874, eða 8,8. Þá voru hjóna­vígsl­urnar 1.891 í heild­ina. Lægsta tíðni hjóna­vígslna var árið 2014, en þá voru þær 4 á hverja 1.000 íbúa eða 1.314 hjóna­vígslur. Þeim fór fjölg­andi eftir árið 2014 en lækk­uðu aftur árið 2020. Þá voru hjóna­vígslur 5 á hverja 1.000 íbúa eða 1.831 hjóna­vígsla. Tölur Hag­stof­unnar ná ekki lengra aftur en til árs­ins 2020. 

Frjósemi á Íslandi

Frjósemi hefur aldrei mælst jafn lág á Íslandi líkt og hún gerði árið 2022. „Fjöldi lif­andi fæddra barna á Íslandi árið 2022 var 4.391 sem er mikil fækkun frá árinu 2021 þegar 4.879 börn fædd­ust. Er þetta mesta fækkun á lif­andi fæddum börnum sem hefur átt sér stað á milli ára frá 1838 eða fækkun upp á 488 börn,” kemur fram á vef Hagstofu.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár