Mansalsmálið, Kristrún Frostadóttir og Bashar Murad í Pressu

Grímur Grímsson, yfir­maður hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Jenný Kristín Valberg, teym­is­stjóri Bjarka­hlíðar og Sigrún Skafta­dóttir, deild­ar­stjóri hjá Vel­ferð­ar­sviði Reykja­víkur koma í Pressu og ræða um mansals­málið. Í þætt­inum verður líka rætt við Kristrúnu Frosta­dóttur, for­mann Sam­fylk­ing­ar­innar og Bashar Murad, tón­list­ar­mann frá Palest­ínu.

Mansalsmálið, Kristrún Frostadóttir og Bashar Murad í Pressu

Aðgerðir lög­reglu í vik­unni sem gerðar voru í sam­starfi við ýmsar stofn­anir og sam­tök voru með þeim umfangs­mestu sem ráð­ist hefur verið í hér á landi.

Rætt verður um aðgerð­irnar og það sem er framundan í mál­inu við Grím Grímsson, Jenný Kristínu Valberg og Sigrúnu Skafta­dóttur í Pressu en Jenný Kristín segir í sam­tali við Heim­ild­ina að þau sem hafi komið að mál­inu ætli sér að halda þétt utan um fólkið sem grunur leikur á að sé fórn­ar­lömb mansals­ins. 

Hún segir að ekki hafi enn tek­ist að ná tali af öllum sem talið er að séu þolendur í mál­inu. Í næstu viku verði fólk­inu sem þá verði búið að ná tali af boðið að hitta full­trúa frá sam­tökum og stofn­unum sem hafi staðið að aðgerð­unum í vik­unni. „Við stefnum að því að geta svarað spurn­ingum þeirra og hlúð að þeim eftir fremsta megni.“

Jenný Kristín segir að grunur leiki á að fólkið hafi unnið tólf klukku­stunda vinnu­daga sex daga vik­unnar og ekki fengið greitt í sam­ræmi við það. „Starfs­fólk ASÍ mun skoða launa­seðl­ana og hugs­an­lega er til­efni til að gera launa­kröfur á eig­endur fyr­ir­tækj­anna.“ 


Í þætt­inum ræðir Helgi Seljan, rann­sókna­rit­stjóri Heim­ild­ar­innar  við Kristrúnu Frosta­dóttur, for­mann Sam­fylk­ing­ar­innar og sýnt verður brot úr við­tali Ölmu Mjallar Ólafs­dóttir, blaða­konu á Heim­ild­inni við Bashar Murad sem keppti í söngvakeppn­inni um síð­ustu helgi.

Pressa er send út í beinu streymi í hádeg­inu alla föstu­daga á vef Heim­ild­ar­innar. Útsend­ing hefst klukkan 12.00.

 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu