Efling birtir yfirlýsingu um hvað stendur út af í kjarasamningum

Efling segir að það séu góðar líkur á því að hægt verði að skrifa undir nýja kjara­samn­inga í dag eða á morgun. Þrjú atriði standa eftir sem samn­inga­nefnd Eflingar og Samtök Atvinnu­lífs­ins eiga eftir koma sér saman um. Enn á eftir að semja um útfærslu á upp­sagn­ar­vernd starfs­fólks á almennum vinnu­mark­aði, orða­lag samn­inga sem snúa að trún­að­ar­mönnum og að lokum á eftir semja um kjör ræst­inga­fólks.

Efling birtir yfirlýsingu um hvað stendur út af í kjarasamningum
Samn­inga­nefnd Eflingar segir að hægt verði að ganga frá samn­ingum í dag eða morgun. Boltinn sé hjá Samtökum Atvinnu­lífs­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Samn­inga­nefnd Eflingar segir að mögu­lega verði hægt að und­ir­rita nýja kjara­samn­inga á næstu sól­ar­hringum – jafn­vel í dag. Í frétta­til­kynn­ingu sem birt var á vef­síðu Eflingar segir að aðeins þrjú atriði séu eftir útistand­andi sem eigi eftir að semja um.

Þá segir í til­kynn­ing­unni að það sé í hendi Samtaka atvinnu­lífs­ins að ganga frá þessum lausu endum hratt og þar með binda enda á flóknar kjara­við­ræður, sem hafa á und­an­förnum vikum harðnað tölu­vert. 

Atriðin sem samn­inga­nefnd Eflingar telur upp í færsl­unni snúa að útfærslu á styrk­ingu upp­sagn­ar­verndar starfs­fólks, ýmsum atriðum og orða­lagi í samn­ingum um trún­að­ar­menn og ýmis atriði sem varða bætt kjör ræst­inga­fólks.

Vilja vernda uppljóstrara og fjölga trúnaðarmönnum á stærri vinnustöðum  

Í yfir­lýs­ingu Eflingar segir að félagið hafi lagt fram ýmsar til­lögur við útfærslu á styrk­ingu upp­sagn­ar­verndar starfs­fólks á almennum vinnu­mark­aði.

Til­lög­urnar snúa að vernd upp­ljóstr­ara á vinnu­staðnum þar sem ekki eru starf­andi trún­að­ar­menn og „þar sem fyr­ir­tæki hafa ekki sjálf sett sér verk­lags­reglur um með­höndlun ábend­inga og kvart­ana starfs­fólks.“ Í til­kynn­ing­unni segir að til­lög­unnar taki mið af gild­andi lögum um vernd upp­ljóstr­ara.

Þá hefur samn­inga­nefnd Eflingar einnig farið fram á trún­að­ar­mönnum verði fjölgað á stærri vinnu­stöðum svo að þeir verði í „eðli­legu hlut­falli við fjölda starfs­fólks á hverjum vinnu­stað.“

Athuga­semd er gerð við það að núver­andi samn­ingar geri ráð fyrir einum trún­að­ar­manni fyrir vinnu­stað þar sem vinna allt frá fimm til 50 starfs­menn. Trún­að­ar­mönnum er fjölgað í tvo ef fjöldi starfs­manna er umfram 50 en ekki þó gert ráð fyrir að trún­að­ar­menn verði fleiri en tveir heilt yfir. 

Betri kjör fyrir ræstingafólk

Í til­kynn­ingu Eflingar segir að enn eigi eftir að klára ýmis atriði sem snúa að kjörum ræst­inga­fólks. Efling fer fram á að skerpt verði á skil­grein­ingum á því hvenær ræst­inga­fólk er í tíma­mældri ákvæð­is­vinnu.

Er því haldið fram að „[b]rögð eru að því að atvinnu­rek­endur reyni að skjóta sér fram­hjá því að greiða umsamið álag sem með réttu á að greiða þegar um tíma­mælda ákvæð­is­vinnu er að ræða.“

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár