Aðstandendur íbúa á Sóltúni beðnir um að þrífa: „Þarna blöskraði mér gjörsamlega“

Stjórn­endur hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins Sóltúns báðu aðstand­endur íbúa að hjálpa til við þrif með eigin tuskum og hreinsi­efnum árið 2022. Það var eftir að eig­end­urnir seldu fast­eign hjúkr­un­ar­fé­lags­ins fyrir 3,8 millj­arða, leigðu hús­næðið af kaup­and­anum, greiddu sér 2 millj­arða út úr félag­inu og fóru svo í nið­ur­skurð á þjón­ust­unni. Aðstand­endur og starfs­fólk lýsa reynslu sinni af starf­sem­inni og þjón­ustu við gamla fólkið.

Aðstandendur íbúa á Sóltúni beðnir um að þrífa: „Þarna blöskraði mér gjörsamlega“
Útleystur gróði eftir einkaarekstr­ar­væð­ingu í byrjun ald­ar­innar Dæmið um hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún sýnir hvernig þrír fjár­festar högn­uð­ust um 2 millj­arða króna á fast­eign hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins Sóltúns vegna samn­ings sem gerður var við íslenska ríkið um rekst­ur­inn fyrir tveimur ára­tugum. Arnar Þórisson og Þórir Kjart­ans­son eru stærstu hlut­hafar Sóltún og Halla Thorodd­sen er for­stjóri hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins.

„Við biðlum til ykkar kæru aðstand­endur að aðstoða okkur við að halda íbúðum hreinum og fínum,“ segir í tölvu­pósti frá Sóltúni öldr­un­ar­þjón­ustu til aðstand­enda íbúa á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Sólvangi í Hafn­ar­firði í febr­úar árið 2022. Með tölvu­póst­inum til­kynnti Sóltún aðstand­endum íbúa að búið væri að útvista þrifum á hjúkr­un­ar­heim­il­inu til ræst­inga­fyr­ir­tæk­is­ins Sóla og var óskað eftir aðstoð þeirra við þrifin til fram­tíðar. „Það getur verið góð dægra­stytt­ing að þurrka af og laga til með sínum ást­vini.“

Tölvu­póst­ur­inn var sendur eftir að eig­endur Sóltúns höfðu tekið tvo millj­arða króna út úr fyr­ir­tæk­inu sem á og rekur hjúkr­un­ar­heim­ilin Sóltún og Sólvang, í kjöl­far þess að þeir seldu fast­eign­ina í Sóltúni til fast­eigna­fé­lags­ins Regins fyrir 3,8 millj­arða árið 2020. Fast­eign­ina leigðu þeir síðan af kaup­and­anum og réð­ust í nið­ur­skurð …

Kjósa
83
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Er einkavinavæðing ekki lausn allra mála hjá Sjálfstæðisflokknum?
    Fróður sagði eitt sinn að fátt væri öruggara en að stofna fyrirtæki um umönnun eldri borgara!
    Gulltryggt af samfélaginu.
    2
  • María Gunnlaugsdóttir skrifaði
    Ótrúleg heimska, hroki og niðrandi tal: „Það getur verið góð dægrastytting að þurrka af og laga til með sínum ástvini.“ Fólk er fullfært um að vita hvað það kýs að verja tíma sínum í. Vonandi hefur þetta rugl mætt mótmælum aðstandenda? Tvö ár síðan?
    2
  • KB
    Kristinn Björnsson skrifaði
    Þessi fjármagnsvæðing er hefur allstaðar einn tilgang, að flytja fjármagn á réttu staðina. Eftir sitja starfsmenn á lágum launum og vistmenn með verri þjónustu. Þetta er stéttabarátta, ef almenningur fer ekki að vakna stefnir þetta í óefni á mörgum sviðum samfélagsins.
    16
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Góðan daginn! Í gær hellti ég úr skálum reiði minnar rétt fyrir svefninn, Fór mikinn á fésinu, bölvaði hressilega en bað svo afsökunar, vildi koma ró á þá sem ef til vill væru viðkvæmir og ættu erfitt með svefn, Sjálf svaf ég eins og engill með málningartape fyrir munninum. Hugsaði með mér að best væri kannski að taka upp þann sið í stað þess að biðja bænirnar mínar að blóta og vera með dólg, rétt fyrir svefn, Ég hef ekki tíma fyrir langan pistil núna en langar að biðja þá sem þetta sjá að hjálpa þjóðinni til að útskýra þrjú hugtök, tvö kvenkyns nafnorð og eitt sagnorð. Við höfum nauman tíma, djöflarnir eru á hælunum á okkur. Orðin eru þessi: Rányrkja, áníðsla og arðræna.
    13
  • Asmundur Richardsson skrifaði
    Hvernig er eftirliti ríkisins háttað á að staðið sé við útboðsskilmála og að gæði þjónustu eru eins og samið var um? Er hægt að fá aðgang að eftirlitsskýrslum eða samantek á eftirlitsúttektum?
    8
    • Ingibjörg Ottesen skrifaði
      Nýfrjálshyggjan leggur niður hvert það eftirlit sem kemur í veg fyrir spillingu og auðvaldssöfnum hinna Guðs útvöldu.
      10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár