Mjög alvarleg staða: „Við erum að vinna í kappi við tímann“

Alvarleg staða er komin upp í tengslum við hita­vatns­lögn sem þjón­ustar stóran hluta Suð­ur­nesja. Unnið er í kappi við tím­ann við að tryggja það að hún virki áfram.

Mjög alvarleg staða: „Við erum að vinna í kappi við tímann“
Grinda­vík­ur­vegur Hraun flæddi yfir Grinda­vík­ur­veg fyrir skemmstu. Unnið er að því að vernda inn­viði á svæð­inu. Mynd: Heimildin / Golli

Birna Lár­us­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi HS Orku, segir hita­vatns­lögn sem þjón­ustar Reykja­nesbæ og stóran hluta Suð­ur­nesja vera í hættu vegna hraun­flæðis. „Hún gæti orðið fyrir skemmdum ef ekki tekst að verja hana í tíma.“ Í þessum töl­uðu orðum er starfs­fólk HS Orku á vett­vangi að reyna að fergja hana. 

„[Við] erum að reyna að fergja lögn­ina og tryggja að hita­vatns­æðin muni áfram virka sem skyldi,“ segir Birna. 

Í upp­færslu frá eld­fjalla- og nátt­úru­vá­r­hópi Suð­ur­lands, sem haldið er úti af sér­fræð­ingum á Facebook, segir að staðan sé „mjög alvar­leg“. Í færslu hóps­ins, sem birt­ist rétt fyrir klukkan 11 í dag segir að aðeins einn kíló­metri sé frá Grinda­vík­ur­vegi, sem hraunið hefur þegar þverað, og að hita­veitu­æð­inni. 

Hjá HS Orku hefur á síð­ustu vikum verið unnið í sam­ræmi við hraun­flæði­líkön og við­bragðs­á­ætl­anir við að koma lögn­inni í jörðu. „En verk­efn­inu var ekki lokið og þeir sem hafa unnið að því verk­efni eru á staðnum núna að gera það sem í þeirra valdi stendur,“ segir Birna.

Í sam­tali við RÚV segir Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn Almanna­varna hjá Rík­is­lög­reglu­stjóra, að sam­kvæmt hraun­flæð­is­lík­önum sem unnið er út frá núna muni það taka innan við þrjár klukku­stundir fyrir hraunið að ná hita­veitu­æð­inni. 

Hraun­straumurHraun hefur streymt upp úr jörðu síðan í morgun.

Í til­kynn­ingu frá HS Veitum kemur fram að hraun­flæðið renni nú í átt að stofn­lögn sem flytji heitt vatn frá Svarts­engi til Fitja í Reykja­nesbæ. Afleið­ingar þess að hraun flæði yfir lögn­ina eru að ekk­ert heitt vatn ber­ist frá Svarts­engi til Reykja­nes­bæjar, Suð­ur­nesja­bæjar, Grinda­víkur og Voga. 

Nú þegar hefur afhend­ing á heitu vatni verið skert til stórnot­enda.

Íbúar og atvinnu­líf á svæð­inu eru beðnir um að lækka hit­ann á húsum sínum og nota ekki heitt vatn til baða. Er þetta til þess að hita­vatns­birgðir end­ist sem lengst til að halda hit­anum á húsum á svæð­inu.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár