Öll Vísis-systkinin hafa minnkað við sig í Síldarvinnslunni

Tvö systk­in­anna sem seldu Vísi til Síld­ar­vinnsl­unnar í des­em­ber 2022 seldu hluta­bréf í útgerð­ar­ris­anum fyrir sam­an­lagt hálfan millj­arð króna í jan­úar síð­ast­liðnum. Öll systk­inin sex eiga nú minni hlut í Síld­ar­vinnsl­unni en þau fengu sem afgjald við söl­una fyrir rúmu ári.

Öll Vísis-systkinin hafa minnkað við sig í Síldarvinnslunni
Systk­inin Faðir þeirra, Páll Hreinn Pálsson, keypti sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Sævík í Grinda­vík og vél­bát­inn Vísi KE 70 með tveimur öðrum rétt fyrir jól árið 1965. Úr þessu varð Vísir sem fjöl­skyldan seldi til Síld­ar­vinnsl­unnar fyrir rúmu ári. Mynd: Gunnar Svanberg

Systk­inin sem seldu Síld­ar­vinnsl­unni Vísi í lok árs 2022 hafa öll selt hlut af þeim hluta­bréfum sem þau fengu við söl­una. Systk­inin, sem eru sex tals­ins, fengu sex millj­arða króna greidda í reiðufé við kaupin auk þess sem Síld­ar­vinnslan tók yfir skuldir upp á ell­efu millj­arða króna. Auk þess fengu þau átta pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni sem var um 18 millj­arða króna virði í byrjun árs 2023 miðað við gengi bréfa í félag­inu þá. 

Pétur Haf­steinn Pálsson, fram­kvæmda­stjóri Vísis, fékk mest í sinn hlut, um 1,6 pró­sent. Hin systk­inin fimm; Páll, Svanhvít Daðey, Margrét, Kristín og Sólný Pálsbörn, fengu tæp­lega 1,3 pró­sent hvert. 

Heim­ildin greindi frá því í apríl í fyrra að Pétur hefði selt fyrir bréf fyrir um einn millj­arð króna og að hlutur hans væri þá kom­inn niður …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár