Vísisfjölskyldan raðar sér í efstu sæti tekjulistans

Fólk úr fjöl­skyld­unni sem seldi Síld­ar­vinnsl­unni útgerð­ar­fyr­ir­tækið Vísi í fyrra raðar sér í efstu sex sætin yfir tekju­hæstu Íslend­ing­ana sam­kvæmt sam­an­tekt Heim­ild­ar­innar.

Vísisfjölskyldan raðar sér í efstu sæti tekjulistans
Skatta­kóngur Pétur Haf­steinn Pálsson er skatta­kóngur Íslands árið 2022. Systir hans, Svanhvít Daðey, er skatta­drottn­ing. Þau seldu hlut sinn í útgerð­inni Vísi í fyrra.

Pétur Haf­steinn Pálsson, sem var stærsti hlut­hafi í útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu Vísi í Grinda­vík er það var selt Síld­ar­vinnsl­unni á 31 millj­arð króna í fyrra er skatta­kóngur árs­ins 2022. Heild­ar­árs­tekjur hans námu tæp­lega 4,1 millj­örðum króna og greiddi hann sam­an­lagt tæpar 903 millj­ónir í skatt. Fjár­magnstekjur hans á árinu námu rúm­lega 4 millj­örðum og af þeim greiddi hann 893 millj­ónir í fjár­magnstekju­skatt.   

Á hæla honum á hátekju­list­anum, sem unn­inn er af blaða­mönnum Heim­ild­ar­innar upp úr álagn­inga­skrám Skatts­ins, fylgja aðrir úr fjöl­skyld­unni sem áttu Vísi, bæði systk­ini og mágar.

Í öðru sæti list­ans er Sveinn Ari Guð­jóns­son, eig­in­maður Sólnýjar Páls­dóttur, systur Péturs. Fjár­magnstekjur hans voru um 3,2 millj­arðar í fyrra og greiddi hann um 707,5 millj­ónir í fjár­magnstekju­skatt. Heild­ar­árs­tekjur Sveins Ara voru rúm­lega 3.232 millj­ónir króna.

Ágúst Þór Ing­ólfs­son, eig­in­maður Krist­ínar Elísa­betar Páls­dóttur, er þriðji tekju­hæsti Íslend­ingur síð­asta árs en aðeins litlu munar á tekjum hans og svila hans, Sveini. Ágúst greiddi rúm­lega 712,5 millj­ónir í skatta þar af um 2,6 millj­ónir í tekju­skatt, um 2,2 í útsvar en rúmar 707,7 millj­ónir í fjár­magnstekju­skatt.  

Svanhvít Daðey Páls­dóttir er skatta­drottn­ing Íslands árið 2022. Hún seldi líkt og systk­ini hennar hlut sinn í Vísi og námu heild­ar­árs­tekjur hennar rúmum 3,2 millj­örðum. Langstærsti hluti þeirra tekna eru fjár­magnstekjur eða 3.215 millj­ónir króna. Svanhvít greiddi tæpar 710 millj­ónir í skatt, þar af 707 millj­ónir í fjár­magnstekju­skatt.

Systir hennar Margrét Páls­dóttir var fimmti tekju­hæsti Íslend­ing­ur­inn í fyrra. Heild­ar­árs­tekjur hennar voru rétt undir tekjum Svan­hvítar systur hennar. Hins vegar voru launa­tekjur hennar á mán­uði aðeins um 285 þús­und krónur eða undir skatt­leys­is­mörkum og greiddi hún því engan tekju­skatt.

Páll Jóhann Pálsson er sjötti rík­asti Íslend­ing­ur­inn sam­kvæmt sam­an­tekt Heim­ild­ar­innar. Heild­ar­árs­tekjur hans voru á svip­uðu reki og ann­arra í fjöl­skyld­unni, ef frá er tal­inn skatta­kóng­ur­inn Pétur bróðir hans, eða rétt undir 3,2 millj­arði. Páll Jóhann greiddi rúmar 705 millj­ónir króna í skatt á árinu, þar af tæpar 700 millj­ónir af fjár­magnstekjum sínum sem námu 3.175 millj­ónum króna.

Fjár­festirDavíð Helgason.

Fara þarf alla leið niður í sjö­unda sæti hátekju­list­ans til að sjá nöfn sem ekki tengj­ast Vísis-fjöl­skyld­unni. Í því sæti er Davíð Helgason, fjár­festir og stofn­andi Unity. Heild­ar­árs­tekjur hans námu tæp­lega 2,2 millj­örðum á síð­asta ári og þar af voru fjár­magnstekjur hans rúm­lega 1,7 millj­arðar. Davíð greiddi 576 millj­ónir í skatta hér á landi í fyrra, þar af tæp­lega 133 millj­ónir í tekju­skatt og rúmar 383 í fjár­magnstekju­skatt.

Jóhann Ólafur Jónsson, fyrr­ver­andi for­stjóri hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Annata og einn af stofn­endum þess, var með sjö­undu hæstu tekjur lands­manna í fyrra eða um 1.379 millj­ónir í heild­ar­árs­tekjur sem fyrst og fremst eru til­komnar vegna fjár­magnstekna. Hann greiddi um 310 millj­ónir í skatta, þar af um 295 millj­ónir í fjár­magnstekju­skatt.

Annata þróar og selur við­skipta­lausnir byggðar á skýja­lausn Microsoft, Azure, og tengdum kerfum, fyrir bif­reiða- og tækja­iðn­að­inn, m.a. Toyota, Volvo og Volkswagen. Í byrjun síð­asta árs eign­að­ist fram­taks­sjóð­ur­inn VEX og fleiri um helm­ings­hlut í fyr­ir­tæk­inu. Jóhann lét af störfum for­stjóra og tók við sem stjórn­ar­for­maður.

Guð­mundur A. Krist­jáns­son er í átt­unda sæti tekju­lista árs­ins 2022 með 1,2 millj­arða í heild­ar­árs­tekjur. Guð­mundur seldi hlut í Hrað­frysti­hús­inu Gunnvöru í fyrra ásamt systk­inum sínum til Jakobs Valgeirs ehf. Fjár­magnstekjur hans námu tæp­lega 2 millj­örðum og af þeim greiddi hann tæpar 264 millj­ónir í fjár­magnstekju­skatt. Sam­an­lagðar skatt­greiðslur hans voru 268 millj­ónir.

Hlut­haf­innHregg­viður Jónsson er stærsti hlut­hafi Veritas-sam­stæð­unnar.

Hregg­viður Jónsson greiddi tæp­lega 235 millj­ónir króna í skatta í fyrra. Heild­ar­árs­tekjur hans voru rúm­lega 1.049 millj­ónir. Hregg­viður er stærsti hlut­hafi Veritas-sam­stæð­unnar sem rekur nokkur stór fyr­ir­tæki í lyfja- og heil­brigð­is­geir­anum.

Í tíunda sæti hátekju­list­ans er tón­skáldið Atli Örv­ars­son. Atli hefur lengi starfað í Banda­ríkj­unum og samið tón­list fyrir marga þekkta sjón­varps­þætti og kvik­myndir. Atli greiddi tæp­lega 240 millj­ónir króna í skatta hér á landi í fyrra. Heild­ar­tekjur hans námu rúm­lega millj­arði og af þeim voru fjár­magnstekjur um 988 millj­ónir.

Heim­ildin mun halda áfram að fjalla um tekjur Íslend­inga á næstu dögum og í næstu viku kemur út sér­stakt hátekju­blað.

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár