Laufey vann Grammy-verðlaun

Lauf­ey Lin Jónsdótt­ir og Ólaf­ur Arn­alds voru til­nefnd til Grammy-verð­laun­anna í ár. Í kvöld hlaut Laufey verð­launin í þeim flokki sem hún var til­nefnd í. Bruce Springsteen var til­nefnd­ur í sama flokki og Lauf­ey.

Laufey vann Grammy-verðlaun
Sig­ur­veg­ari Laufey á Grammy-verð­launa­há­tíð­inni í kvöld þar sem hún tók á móti verð­laun­unum eft­ir­sóttu. Mynd: Skjáskot

Laufey Lin Jóns­dóttir vann í kvöld Grammy- verð­laun fyrir plötu sína Bewitched í flokki hefð­bundna popptón­listar, sungin tón­list (e.Tra­diti­onal Pop Vocal Alb­um). Þetta var í fyrsta sinn sem Laufey var til­nefnd til verð­laun­anna en á meðal þeirra sem voru líka til­nefndir í hennar flokki var goð­sögnin Bruce Springsteen.

Hægt er að sjá brot úr sig­ur­ræðu Lauf­eyjar hér að neðan.

Þegar Laufey tók við verð­laun­unum þakk­aði hún inni­lega fyrir sig og sagði að verð­launin væru stór­kost­leg. „Ég trúði því ekki í milljón ár að þetta gæti gerst.“ Hún þakk­aði svo teym­inu á bak­við sig, for­eldrum sínum og ömmum og öfum fyrir að kynna sig fyrir tón­list. Stærstu þakk­irnar fékk svo Junia, tví­bura­systir Lauf­eyjar, sem tón­list­ar­konan sagði vera sinn helsta stuðn­ings­mann. 

Laufey var líka á meðal þeirra tón­list­ar­manna sem skemmtu á hátíð­inni í kvöld. 

Tróð uppLaufey var á meðal þeirra tón­list­ar­manna sem spil­uðu á verð­launa­há­tíð­inni í kvöld

Ólafur Arnalds var einnig til­nefndur fyrir plöt­una Some Kind of Peace (Piano Reworks) í flokknum nýald­ar­stemmn­ings­tón­list (e. Best New Age, Ambient, or Chant Album). Hann hefur tvisvar áður hlotið til­nefn­ingu.

Jón Sig­ur­geirs­son, faðir Lauf­eyjar, var eðli­lega stoltur af dóttur sinni í kvöld.

Jón starfar sem efna­hags­ráð­gjafi Lilju D. Alfreðs­dóttur, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra. Lilja fagn­aði verð­laun­unum á Facebook í kvöld með eft­ir­far­andi orðum:

„Þvílík stund! Laufey hlaut Grammy-verð­laun fyrir plötu sína Bewitched í flokki hefð­bundnar popptón­listar, sungin tón­list (e. Tra­diti­onal Pop Vocal Alb­um)!

Þetta er risa­stór áfangi og sigur fyrir Laufeyju sjálfa, en ekki síst íslenskt menn­ing­ar­líf. 

Og kvöldið er ekki búið, en um sann­kall­aða Íslands­há­tíð er að ræða á sjött­ug­ustu og sjöttu Grammy-tón­list­ar­verð­launa­há­tíð­inni, sem fram fer í Los Angelesí kvöld. Ólafur Arnalds er líka til­nefndur fyrir Some Kind of Peace (Piano Reworks) í flokknum nýald­ar­stemmn­ings­tón­list (e. Best New Age, Ambient, or Chant Album).

Ekki nóg með þetta, heldur koma Íslend­ingar við sögu í annarri til­nefn­ingu í kvöld.  Tölvu­leik­ur­inn Stríðs­guðin Ragnarök hlaut til­nefn­ingu fyrir besta hljóð­ritið í flokki tölvu­leikja og ann­arra gagn­virkra miðla (e. Best Score Soundtrack for Video Games and Other Interactive Media), og í flokknum besta hljóð­platan fyrir hljóð­upp­tökur (e. Best Immersive Audio Album). Í lag­inu er áber­andi kór­söngur á nor­rænu máli, sem Schola Cantorum og Hymnodia taka upp í Hofi á Akureyri undir merkjum Sin­fon­i­aNord.

Það drjúpa hæfi­leikar af hverju strái á þess­ari eyju okkar. Það er bara þannig. Við getum verið svo ótrú­lega stolt hvað fólkið okkar er að ná langt úti í honum stóra heimi. Höldum áfram að hlúa að menn­ing­ar­líf­inu okkar, útkoman úr því mun alltaf gera okkur stolt."

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • •
    • skrifaði
    Stórkostleg listakona! Kannski Laufey fáist til að syngja eina vel valda þjóðlega vögguvísu fyrir ónefndan ráðherra?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár