Hraunrennsli til norðurs gæti ógnað Reykjanesbraut

„Ef gos kæmi upp við Stóra-Skógfell þá gæti hraunið runnið til norð­urs,“ segir Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur. Þá gæti það, ef allt færi á versta veg, flætt að og jafn­vel yfir Reykja­nes­braut.

Hraunrennsli til norðurs gæti ógnað Reykjanesbraut
Hvað næst? Sund­hnjúka­gíga­röðin er löng og á henni hafa nú orðið tvö eld­gos á nokkrum vikum. Líklegt er að virknin haldi þar áfram. Gos syðst á sprung­unni ógnar byggð­inni í Grinda­vík. Gos um mið­bik hennar mögu­lega Bláa lón­inu og Svarts­eng­is­virkjun en ef gos yrði nyrst í henni gæti Reykja­nes­brautin orðið undir hrauni. Mynd: Golli

„Ég tel lík­leg­ast að næsta gos komi upp á milli Haga­fells og Stóra-Skóg­fells,“ segir Þor­valdur Þórð­ar­son, pró­fessor í eld­fjalla­fræði. Það gæti allt eins gerst á allra næstu dögum. Hann telur í raun lík­leg­ast að fram­hald jarð­hrær­inga á Reykja­nesi verði, næstu mán­uði og jafn­vel lengur, á Sund­hnjúka­sprung­unni, sem áður­nefnd fell til­heyra. Gera megi ráð fyrir litlum gosum á þeim slóðum, lík þeim sem urðu í des­em­ber og jan­úar.

En hvar gosið kemur upp á þess­ari sprungu, sem svaf í um eða yfir 2.000 ár áður en þar varð gos í lok síð­asta árs, er stóra málið í þessu sam­bandi.

Eld­fjalla­fræð­ingurÞor­valdur Þórð­ar­son.

„Líkön sem byggja á GPS gögnum sýna að nú hafa um það bil 6,5 milljón rúmmetrar flætt inn í kviku­hólfið kennt við Svarts­engi,“ sagði í til­kynn­ingu frá Veð­ur­stofu Íslands í gær sem sam­hliða birti nýtt hættu­mat­skort af Grinda­vík og nágrenni. „Miðað við þetta mat er lík­legt að kviku­magnið nái svip­uðu rúm­máli og fyrir eld­gosið 14. jan­úar á næstu tveimur vikum og jafn­vel dögum. Þetta þýðir að lík­urnar á kviku­hlaupi og eld­gosi hafi auk­ist.“

Benedikt Ófeigs­son nátt­úru­vá­r­sér­fræð­ingur á Veð­ur­stof­unni sagði í RÚV í gær að hann teldi, líkt og Þor­valdur, lík­leg­ast að næsta eld­gos komi upp á svæð­inu á milli Stóra-Skóg­fells og Haga­fells. Þar hafi mesta virknin verið und­an­farið og gögn bendi til þess að svæðið sé lík­legt.

Og það er þessi stað­setn­ing sem Þor­valdur segir til­efni til að hafa áhyggjur af. „Ef gos kæmi upp við Stóra-Skógfell þá gæti hraunið runnið til norð­urs,“ segir hann við Heim­ild­ina. Síðustu tvo gos hafa verið sunnar á sprung­unni og sunnan vatna­skila sem fara um miðju Reykja­nesskag­ans. „Ef það kemur gos á norð­an­verðri Sund­hnjúka­sprung­unni þannig að hraun færi að flæða til norð­urs, þá gæti það flætt að og jafn­vel yfir Reykja­nes­braut,“ segir hann. Það væri vissu­lega mjög óheppi­legt, ekki síst núna þegar leiðir sunnan megin á skag­anum eru ýmist laskaðar eða lok­aðar. Og þar með yrði engin greið leið til Kefla­vík­ur­flug­vallar.

Sund­hnjúka­gígarFyrir um það bil miðju korts­ins er Stóra-Skógfell.

Spurður hvort huga ætti að vörnum til að koma í veg fyrir þessi ósköp svarar Þor­valdur: „Já, því hvað ætlum við að gera? Ég er ekki að segja að það eigi að fara að byggja varn­ar­garða eftir endi­löngum Reykja­nesskag­anum. En ef kemur til þess að hraun fari að flæða í átt að Reykja­nes­braut­inni og að líkur væru á að það færi yfir hana og ekki yrði mögu­legt að keyra til vest­ur­hluta Reykja­nesskag­ans, þá værum við ekki í sér­stak­lega góðum málum.“

„Við vitum öll hvað það er mik­il­vægt fyrir sam­fé­lagið allt og atvinnu­veg­ina að Kefla­vík­ur­flug­völlur hald­ist opinn, að þangað sé greið og örugg leið“
Þor­valdur Þórð­ar­son,
pró­fessor í eld­fjalla­fræði.

Kefla­vík­ur­flug­völlur er vel stað­settur á Reykja­nesskaga með til­liti til hraun­rennslis þótt vissu­lega gæti hann lok­ast vegna gasmeng­unar eða ösku­falls í þeim eldum sem nú eru hafnir á svæð­inu og gætu varað í ára­tugi eða aldir. En hættan er, líkt og Þor­valdur bendir á, að leiðir að vell­inum lok­ist.

„Við vitum öll hvað það er mik­il­vægt fyrir sam­fé­lagið allt og atvinnu­veg­ina að Kefla­vík­ur­flug­völlur hald­ist opinn, að þangað sé greið og örugg leið,“ segir hann. Áföllin þurfi ekki að raun­ger­ast til að ferða­menn hiki við að koma til lands­ins.

„Við þurfum að hugsa um þetta. Hugsa upp lausnir. Við þurfum að vera við­búin að geta tek­ist á við það. Því betur und­ir­búin sem við verðum, því minna vanda­mál verður það. Og því minni verður kostn­að­ur­inn. Þegar allt verður farið af stað þá verður dýrt að vera ennþá á byrj­un­ar­reit.“ 

Hann segir enn­fremur „afskap­lega mik­il­vægt að hafa þessi mál í lagi svo ferða­menn viti að það sé öruggt að koma hingað, að flug­völl­ur­inn okkar sé öruggur og greiðar og öruggar leiðir að honum.“

Og ef við hugsum til langs tíma, bætir Þor­valdur við, þá væri skyn­sam­legt að byggja annan alþjóð­legan flug­völl „en ekki líka á svæði þar sem hætt­urnar eru þær sömu. Ekki vera með öll eggin í sömu öskj­unni.“

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár