Birgir stofnar lögfræðiþjónustu

Fyrr­ver­andi for­seti Alþingis tekur aftur upp mál­flutn­ings­rétt­indi og stofnar félag.

Birgir stofnar lögfræðiþjónustu
Birgir Ármanns­son Setti mark sitt á Sjálf­stæð­is­flokk­inn á þess­ari öld. Mynd: Golli

Birgir Ármanns­son, fyrr­ver­andi for­seti Alþingis og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur stofnað lög­fræði­þjón­ustu.

Birgir var ekki í fram­boði til Alþingis fyrir síð­ustu þing­kosn­ingar og lauk þar með 21 árs þing­ferli. Hann hafði ekki hlotið náð upp­still­ing­ar­nefndar Sjálf­stæð­is­flokks­ins. „Ég er til­bú­inn til þess að vera áfram ef það verður nið­ur­staða upp­still­ing­ar­nefndar og fund­ar­ins í kjör­dæm­is­ráð­inu,“ sagði hann þá. 

Í sam­tali við Vísi í júní síð­ast­liðnum kom fram að hann hefði leyst út mál­flutn­ings­rétt­indi á ný. „Það er alltaf eitt­hvað spenn­andi. Þetta er ný til­vera og það er gaman mjög gaman að því,“ sagði hann þar.

Birgir hóf ungur aðild að stjórn­málum. Hann var for­maður Heimdallar, félags ungra Sjálf­stæð­is­manna, árin 1989 til 1991, eða á aldr­inum 21 til 22 ára. Samtímis og áður var hann blaða­maður Morg­un­blaðs­ins. Birgir kláraði emb­ætt­is­próf í lög­fræði frá Háskóla Íslands 1996 og varð hér­aðs­dóms­lög­maður 1999, áður en hann sótti fram­halds­nám við King's College í London 1999 til 2000.

Loks var Birgir kjör­inn á þing árið 2003, þá 35 ára gam­all, og varð þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins  2017 til 2021, og svo for­seti Alþingis 2021 til 2024.

Lög­fræði­þjón­usta Birgis heitir Lög­fræði­þjón­usta Birgis Ármanns­sonar ehf. og er skráð til heim­ilis á heim­ili hans í Vesturbæ Reykja­víkur. Í vara­stjórn er dóttir Birgis.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár