Diljá Mist varð fyrir aðkasti í matvöruverslun

Diljá Mist Ein­ars­dóttir telur að of margir gangi út frá því að illur ásetn­ingur sé að baki ýmsum skoð­unum og fram­ferði fólks. Hún varð fyrir aðkasti í mat­vöru­verslun og þurfti að útskýra fram­komu fólks í sinn garð fyrir syni sínum á fót­bolta­móti. Diljá Mist var einn við­mæl­enda Mar­grét­ar Marteins­dótt­ur í síð­asta þætti af Pressu.

Diljá Mist varð fyrir aðkasti í matvöruverslun

„Ég hef þurft að útskýra fyrir börn­unum mínum hegðun fólks í minn garð á almanna­vett­vangi. Mér finnst það ekki ásætt­an­legt. Koma upp að mér ekki með fal­legum mál­flutn­ingi,“ sagði Diljá Mist Ein­ars­dótt­ur, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Pressu á föstu­dag­inn. „Ég lenti í þessu í mat­vöru­verslun út af Silfri sem ég fór í.“

Diljá Mist seg­ist hafa þurft að útskýra hegðun fólks í hennar garð á almanna­vett­vangi fyrir börnum sínum. „Mér finnst það ekki ásætt­an­legt. Ég held við ættum aðeins að stíga skref til baka. Hugsa um það hvernig við viljum koma fram við hvort annað í þessu sam­fé­lagi.“

Diljá Mist telur að of margir gangi út frá því að illur ásetn­ingur sé að baki ýmsum skoð­unum og fram­ferði fólks. „Það var sér­stakt að þurfa að útskýra hegð­un­ina fyrir tíu ára gömlum syni mínum á fót­bolta­móti barna um helg­ina þegar hann varð var við hana.“ sagði hún í ræðu þann 23. jan­úar á Alþingi.

Diljá Mist var, líkt og áður sagði, á meðal við­mæl­enda Mar­grétar Mart­eins­dóttur í nýjasta þætti Pressu. Þar ræddi Margrét einnig við þær Vigdísi Häsler, fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­tak­anna, og Guðrúnu Margréti Guð­munds­dóttur, sér­fræð­ing hjá Alþýðu­sam­bandi Íslands (ASÍ). Umræðu­efni þátt­ar­ins var mál­efni inn­flytj­enda og ummæli Bjarna Bene­dikts­sonar, utan­rík­is­ráð­herra og for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um tjald­búð­irnar á Aust­ur­velli sem hann sagði nýlega vera hörm­ung. Í færsl­unni sagði hann að það þyrfti að „herða reglur um hæl­is­leit­enda­mál“ og „auka eft­ir­lit á landa­mærum“ því inn­viðir væru „komnir að þol­mörkum.“ 

Álag á innviði

„Við höfum tekið á móti, í tvö ár í röð, fimm þús­und flótta­mönnum á ári. Í kjöl­farið hefur auk­ist mjög umræða inn­an­lands um álag á inn­við­ina þannig að það er mjög ósann­gjarnt að segja að við séum ekki með opinn faðm­inn hér fyrir flótta­mönnum,“ sagði Diljá Mist í þætt­inum. „Svo stígur fram, hver til dæmis sveit­ar­stjórn­ar­maður á fætur öðrum og segir, við eigum ekki hús­næði, við eigum ekki skóla­pláss, við eigum ekki mann­skap í að kenna. Við höfum ekki leik­skóla­pláss. Við heyrum það líka frá sam­löndum okkar sem eru að lenda í vand­ræðum í leik­skóla­málum. Það er heil­brigð­is­kerfið okkar. Við erum komin að þol­mörkum að svo miklu leyti. Enda höfum við verið að taka á móti gríð­ar­lega miklum fjölda fólk. Miklu, miklu fleiri heldur en öll þau lönd sem við berum okkur saman við.“

Samkvæmt töl­fræði vernd­ar­sviðs Útlend­inga­stofn­unar bár­ust 4.520 umsóknir um vernd hér­lendis á árinu 2022 og 3.911 á fyrstu ell­efu mán­uðum síð­asta árs. Af þeim sem sóttu um vernd á Íslandi á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins 2023 komu 1.515 frá Venes­ú­ela og 1.504 frá Úkraínu. Því komu 77 pró­sent allra umsókna frá fólki frá þessum tveimur löndum. Næstum helm­ingur þeirra sem sótti um vernd og komu frá Venes­ú­ela fengu synjun, eða 713 manns. 

Diljá Mist segir svarið við spurn­ing­unni hvað Ísland ætli að taka á móti mörgum hæl­is­leit­endum velti á því hversu margir komi til lands­ins. „Reglan í hæl­is­leit­enda­mál­unum er fyrstur kemur, fyrstur fær.“ Diljá Mist segir það gríð­ar­lega mik­il­vægt að Íslandi dragi ekki úr þró­un­ar­að­stoð, meðal ann­ars í Afríku. Hún velti einnig upp þeirri spurn­ingu hvort að fjár­mun­unum sem er varið í hæl­is­leit­enda­málum á Íslandi „sé best varið í hæl­is­leit­enda­kerfi hér inni á litla Íslandi.“

„Fólk eigi að máta sínar skoðanir“ 

Guðrúnu Margréti þótti ummæli Bjarna um palest­ínsku mót­mæl­end­urna á Aust­ur­velli vera mjög ábyrgð­ar­laus. Mörgum þætti skrítið að Bjarni „pikki í“ þá sem ættu mest bágt á land­inu. Ekki síst því Sjálf­stæð­is­menn væru sam­mála um að hleypa til lands­ins Úkraínu- og Venes­ú­ela­mönnum.

Diljá Mist segir að sér þyki sem það megi ekki tala um útlend­inga­málin. „Ég finn sjálf að ég stress­ast öllu upp og fæ smá kvíða yfir því þegar ég er að ræða þessi mál.“ Um færslu Bjarna sagði hún: „Fólk er ósatt en fjöl­margir eru ánægðir með að ein­hverjir segi hlut­ina upp­hátt sem aðrir eru að hugsa. Ég er þeirrar skoð­unar að fólk eigi að máta sínar skoð­anir í frjálsu lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi og síðan fá við­brögðin og þannig ræðum við okkur niður á nið­ur­stöðu.“ 

Fjölskyldusameining í forgang

„Við höfum auð­vitað tekið alveg sér­stak­lega vel á móti Palest­ínu­mönnum í okkar landi. Miklu, miklu betur heldur en allar okkar nágranna­þjóðir. Við fáum hérna hæl­is­um­sóknir frá fleiri Palest­ínu­mönnum heldur en allar okkar nágranna­þjóðir sam­an­lagt. Við erum eina þjóðin af þeim sem höfum sett fjöl­skyldu­sam­ein­ingar í for­gang. Þær hafa alls ekki verið að gera það,“ segir Diljá Mist.

Hér að neðan má sjá þátt­inn í heild sinni:

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Stjórnmálamenn fá borgað fyrir óþægindi sem fylgja starfinu. 2 milljónir á mánuði væri annars allt of mikið fyrir störf sem krefjast hvorki sérstakrar menntunar, reynslu né þekkingar. Íslenskir þingmenn eru hærra launaðir en bandarískir geimvísindamenn, að ekki sé minnst á ráðherra.
    0
  • Yngvi Sighvatsson skrifaði
    Ofgafólk verður því miður fyrir aðkasti frá fólki sem er öfgafullt í "hina" áttina. Þannig er það allstaðar um heim.
    0
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Þetta er efni í tvær aðskildar greinar og ekki heppilegt að mínu mati að tvínna þetta tvennt saman.
    Í fyrsta lagi - og það gefur yfirskriftin að kynna - varð Diljá Mist fyrir aðkasti þegar hún sinnti erindum sem einkapersóna. Slíkt er ólíðandi, ekki síst þegar fjölskylda hennar er með. Þar ættum við öll að vera sammála.
    En svo breytist greinin í fullri lengd í rökstuðning hennar fyrir afstöðu sína. Og hér hefur fólk auðvitað sínar skoðanir og hún verður að geta tekið á móti gagnrýni.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár