Hágrét þegar hún las færslu Bjarna

Jasmina Vajzović þekkir af eigin raun hvernig er að vera barn á flótta undan stríðs­á­tökum. Hún hágrét þegar hún las Facebook-færslu Bjarna Bene­dikts­sonar utan­rík­is­ráð­herra um mót­mæli Palest­ínu­manna á Aust­ur­velli. „Ég er buguð því ég skil, ég upp­lifi og finn til með börnum á flótta og fólki á flótta.“

Jasmina Vajzović Crnac var fimmtán ára gömul þegar hún og fjöl­skylda hennar neydd­ust til að flýja stríðs­á­stand í Bosníu og Her­segóvínu og kom til Íslands. „Ég hef aldrei í öll þessi 27 ár sem ég hef búið á Íslandi fundið orð til að lýsa hryll­ingnum,“ segir Jasmina um ástandið sem fjöl­skyldan var að flýja. Enn finnur hún fyrir áhrifum þess að hafa þurft að flýja heima­landið og upp­lifa það að vera barn á flótta. 

„Að ala á sundr­ungu til að fá nokkur atkvæði er nátt­úru­lega fyrir neðan allar hellur“

Og það hafði mjög sterk áhrif á hana þegar hún las Facebook-færslu utan­rík­is­ráð­herra um helg­ina. „Ef ég á að vera mjög hrein­skilin, þá hágrét ég,“ sagði Jasmina.  

Færsla Bjarna

Það var síð­ast­lið­inn föstu­dag sem Bjarni birti færslu, þar sem hann sagði „hörm­ung að sjá tjald­búðir við Aust­ur­völl,“ þar sem Palstínu­menn hafa mót­mælt aðgerð­ar­leysi rík­is­stjórn­ar­innar vegna ástands­ins þar í landi og hversu langan tíma hefur tekið að hefja fjöl­skyldu­sam­ein­ingu. 

Bjarni sagði að þessar „dap­ur­legu tjald­búðir“ hefðu „ekk­ert með hefð­bundin mót­mæli að gera. „Hópurinn flaggar þarna fjölda þjóð­fána frá Palest­ínu og festir á ljósastaura og tjöld. Engum ætti að líð­ast að flagga nokkrum þjóð­fána fyrir framan Alþingi Íslands svo vikum skipti til að mót­mæla íslenskum stjórn­völdum.“ 

Hann sagði jafn­framt að það þyrfti að „herða reglur um hæl­is­leit­enda­mál“ og „auka eft­ir­lit á landa­mærum“ því inn­viðir væru „komnir að þol­mörkum“. „Núver­andi fyr­ir­komu­lag er alger­lega komið úr bönd­unum, bæði varð­andi kostnað og fjölda umsókna,“ skrif­aði Bjarni. „Samhliða þessu þarf að styrkja lög­regl­una meðal ann­ars með auknum heim­ildum í bar­átt­unni gegn brota­starf­semi, þar með talið alþjóð­legri brota­starf­semi.“

Elur á sundrungu

Jasminu var veru­lega brugðið þegar hún las orð, frá for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins og utan­rík­is­ráð­herra Íslands. „Þetta sam­hengi er rangt vegna þess að það býður upp á sundr­ungu,“ segir Jasmina í við­tali við Heim­ild­ina. „Þetta býður upp á hatur. Þetta býður upp á að flokka fólk í ein­hverja ákveðna hópa.“ 

Hún brást við með því að skrifa sjálf færslu, þar sem hún sagði: „Ég er buguð því ég skil. Ég upp­lifi og finn til með börnum á flótta. Og fólki á flótta. Ég finn svo til og það er sárt að horfa, hlusta og heyra alla þessa orð­ræðu og öll þessi ljótu orð suma. Ég er sár og græt fyrir þeirra hönd og reyndar mín líka. Það er til fólk sem vill senda þau, og mig og mín börn með, í gámum heim.“

Það er til fólk sem vill senda þau, og mig og mín börn með, í gámum heim“

Sárnaði viðbrögð vina

Þetta voru fyrstu við­brögð hennar. Næstu færslu beindi hún að vinum sínum og með fylgdi mynd af henni grát­bólg­inni, en hún sagð­ist hafa grátið með ekka þegar hún las orð utan­rík­is­ráð­herra.

Grét með ekka­sogumJasmin segir að það hafi valdið djúp­stæðum sárs­auka að lesa færslu utan­rík­is­ráð­herra og athuga­semdir sem fylgdu í kjöl­farið.

„Þetta er mynd fyrir ykkur kæru FB vinur sem læk­uðu,“ status Bjarna, „sem finnst frið­sam­leg mót­mæli fólks sem vill bjarga fjöl­skyldum sínum frá Gaza og útrým­ingu barna þeirra, hörm­ung. Vonandi líður ykkur vel með þetta en mér líður svo ömur­lega að sjá ykkar læk við færsl­una að ég er útgrátin. Mörg ykkar þekki ég í raun­heimum og suma betur en aðra. Jafnvel hef ég talið suma alvöru vini mína og hefu drukkið kaffi með ykkur heima hjá mér. Þegar þið styðjið þessar skoð­anir utan­rík­is­ráð­herra, þá hugsið þið líka til mín, að mínu mati, á sama hátt. Hafið þið áttað ykkur á því?“

Sagði hún mál­flutn­ing sem þennan stór­hættu­legan. „Þessa skoð­anir hans eru bein­línis stór­hættu­legar.“ Undirrót þess að fólk þyrfti að flýja heim­ili sín væri vegna slíkra skoð­ana, þar sem fólki er skipt niður í mis­verð­uga flokka. „Þess vegna,“ segir hún, „þurfti ég og fjöl­skylda mín að flýja svo við lifðum af. Ætla ekki fara úti allskyns ofbeldi sem ég þurfti þola og umbera. Þetta byrj­aði nefni­lega rólega með svona skoð­unum og áður en maður vissi af þá var ég beitt grófu ofbeldi sem er enn að hafa áhrif á mitt líf.“

Hún sagði að það hefði sært hana djúpt að sjá fólk sem hún þekkti sam­þykkja slíkan mál­flutn­ing. „Með því að setja like þá eruð þið að sam­þykkja hans orð­ræðu. Sem er ekk­ert annað en manns­vonska.“ Hún hafi ekki aðeins orðið fyrir von­brigðum heldur hafi við­brögðin við slíkum mál­flutn­ingi líka vakið upp í henni ótta. Hún ótt­ist ekk­ert meira en að hún verði næsti flótta­maður sem verði kraf­inn um að fara frá Íslandi. „Ykkur finnst þetta örugg­lega fjari raun­veru­leik­anum en vitið, svona orð­ræða býður upp á átök, útskúfun og ofbeldi.“

„Þessir menn“

Í við­tali við Heim­ild­ina segir Jasmina að hún hafi sjálf upp­lifað útskúfun fyrir það eitt að vera barn á flótta. „Ég vil að fólk geti sett sig í mín spor, hvernig það er að vera flótta­maður. Af því það er hryll­ingur. Þú ert bara að bíða á hverjum degi:  Hvenær verður þú næst? Hvenær kemur að því að ein­hver bankar upp á og skýtur mig?“

Hún hefur áhyggjur af því að fólk sem tekur undir svona sjón­ar­mið eigi erfitt með að setja sig í fót­spor fólks á flótta. Á meðal þeirra sem taka undir færslu Bjarna er meðal ann­ars ein sem segir: „Allt satt og rétt,“ „þessir menn kasta af sér þvagi á styttu af frels­is­hetju okkar,“ og: „Eins og vel sést á Aust­ur­velli er ein­kenni þessa fólks frekja og yfir­gangur ... Þeir hata Vest­ur­lönd og þeirra vilji og trú skal fram að ganga með góðu eða illu ... þegar þeir verða nógu margir. Það er bein­línis stór­hættu­legt að fram­kvæma þessar fjöl­skyldu­sam­ein­ingar ... bara glæpur gegn íslenskri þjóð.“

Þótt margir hafi mót­mælt orðum Bjarna eru fleiri sem taka í sama streng og sú sem skrifar hér að ofan. „Loksins kemur ein­hver úr rík­is­stjórn­inni og and­mælir þessu!“ sagði einn sem full­yrti að Íslend­ingar vilji „þennan ófögnuð í burt og ef þið getið ekki komið á harð­ari flótta­manna­stefnu með x-V í fang­inu þá sleppið þeim og kjósum.“ 

„Heyr, heyr! Kominn tími á að loka landa­mær­unum og fara að taka til í þessum mála­flokki,“ sagði enn annar og bætti því við að það væri „lít­ils­virð­ing við þjóð­ina“ að leyfa mót­mælin þar. „Þessi með­virkni sem hefur ein­kennt allt, þetta er ein gerð af ofbeldi.“ 

Jasmin segir að það sé eitt að ræða hvort mót­mæli ættu yfir­höfuð að eiga sér stað á Aust­ur­velli, en „að kalla þau hörm­ung, í ljósi þess að þarna er fólk sem er statt í sinni verstu martröð að reyna að bjarga sínum dýr­mætasta fjár­sjóði sem er börn, makar og for­eldrar.“

Þá seg­ist hún vera mjög hugsi yfir því af hverju fólk frá Palest­ínu virð­ist fá aðra með­ferð en flótta­fólk sem kom hingað til lands frá Úkraínu. „Þau eru ekki sett undir sama hatt, þannig við erum að búa til ein­hverja staðla, eins og þessir flótta­menn séu ein­hvern vegin öðru­vísi, eftir því hvaðan þeir koma. Það er ekki þannig. Flótta­menn eru allir flótta­menn og að glíma við það sama. Þetta er allt einn hópur sem á virki­lega bágt.“

Kjósa
82
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EK
    Elísabet Kjárr skrifaði
    Vá, hvað þetta er átakanlegt. Flott viðtal og hún hefur algerlega rétt fyrir sér. Auðvitað mætir Bjarni svo með gaslýsingarnar sínar og málið er dautt. Talar um innviðina sem hann er búinn að vinna kerfislega að því að fjársvelta til að einkavæða. Mikið hlakka ég til að losna við hann.
    7
  • Bryndís Dagbjartsdóttir skrifaði
    ❤️
    2
  • Matthildur Guðmundsdóttir skrifaði
    ❤
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár